Karlalið ÍBV í fótbolta tapaði 2-1 gegn Val, í annarri umferð Bestu deildar karla, á Hlíðarenda í kvöld.
Fyrri hálfleikurinn byrjaði nokkuð rólega og lítið um alvöru færi. Það dró til tíðinda á 21. mínútu leiksins þegar Eyjamenn fengu hornspyrnu. Bjarni Mark Antonsson skallaði þá boltann í burtu beint fyrir fætur Felix Arnars Friðrikssonar sem átti frábært utanfótar skot fyrir utan teig, framhjá markverði Valsmanna. 1-0 fyrir ÍBV. Valmenn voru ekki lengi að svara en níu mínútum síðar var Lúkas Logi Heimisson búinn að jafna leikinn eftir fyrirgjöf Adam Ægis Pálssonar. Staðan 1-1 í hálfleik.
Bæði lið skiptust á að sækja í síðari hálfleik en lítið um dauðafæri. Sigurmark Valsmanna kom á 73. mínútu leiksins þegar Hólmar Örn Eyjólfsson skallaði hornspyrnu Adams Ægis í netið. Arnar Breki Gunnarsson komst næst því að jafna fyrir ÍBV þegar hann fékk boltann inn á vítateig Valsmanna en Frederik Schram varði skotið frá honum. Lokatölur leiksins 2-1
Fyrirliði ÍBV, Alex Freyr Hilmarsson þurfti að fara af velli á 22. mínútu leiksins vegna meiðsla sem hann varð fyrir. Þjálfari ÍBV, Aleksandar Linta, fékk að líta rauða spjaldið eftir leik fyrir mótmæli.
ÍBV fær KR í heimsókn, í þriðju umferð Bestu deildar karla, fimmtudaginn 23. apríl kl. 13:00.