Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Sæunn Magnúsdóttir frá Eyjaflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.

Nafn: Sæunn Magnúsdóttir

Aldur: 38 ára

Fjölskylda: Ég er dóttir Magga Þorsteins og Kristínar Sigurðar. Eiginmaður minn er Sveinn Hjalti Guðmundsson.

Menntun og störf: Ég er lögfræðingur að mennt og hef starfað í ansi mörg ár sem fulltrúi og staðgengill sýslumannsins í Vestmannaeyjum.

Fyrri afskipti af stjórnmálum: Áhugi minn á bæjarmálunum er ekki nýr af nálinni. Ég hef fengið tækifæri til að taka virkan þátt í starfi sveitarfélagsins undanfarin fjögur ár, kynnst því betur hvernig staðið er að ákvarðanatöku hjá sveitarfélaginu og hvernig stjórnsýsla bæjarins virkar í raun. Ég hef sinnt hlutverki varabæjarfulltrúa, setið í framkvæmda- og hafnarráði og starfað í stjórn Herjólfs.

Af hverju Miðflokkurinn? Ég ákvað að ganga til liðs við Miðflokkinn þar sem ég tel að finna bæði skýra sýn og gildi sem ég get staðið heilshugar með.

Brýnustu verkefni: Við stöndum frammi fyrir því að þurfa að nýta fjármuni sveitarfélagsins betur, hugsa til lengri tíma og taka ákvarðanir sem skipta máli fyrir framtíðina.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ábyrgan rekstur, samgöngu- og atvinnumál.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Ég tel og vil að Vestmannaeyjar verði áfram sá burðarás sem hann er fyrir íslenskt samfélag sem færir miklar tekjur í þjóðarbúið og að litið verði til þess þegar úthlutað er úr sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar og þjónustustig við íbúa ákveðið.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Miðflokksins: Ég hef starfað lengi innan stjórnsýslunnar, tekið þátt í bæjarmálunum og gegnt formennsku hjá ÍBV. Þessi reynsla er mér ómetanleg. Hún hefur ekki aðeins skapað mér gott og mikið tengslanet heldur hefur hún einnig kennt mér að rekstur sveitarfélags er ekki einfalt verkefni – hann krefst ábyrgðar, skynsemi og ekki síst þess að ekki er nóg að líta aðeins til næsta dags þegar ákvarðanir eru teknar.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Að hér séu mannsæmandi samgöngur, að fjölbreytt atvinnulíf geti blómstrað hér og að við höldum fast í og höldum áfram að rækta þetta einstaka eyjasamfélag og karakter sem við erum þekkt fyrir.

Nýjustu fréttir

Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.