Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.

Nafn: Kjartan Vídó Ólafsson

Aldur: 47 ára

Fjölskylda: Flutti aftur til Eyja fyrir rúmu ári og er í sambúð með Guðrúnu Lilju Friðgeirsdóttur, leikskólakennara á Sóla. Ég á þær Önnu Birnu 22 ára, sálfræðinema og Kristjönu Emmu 15 ára, grunnskólanema og Guðrún á Breka 21 árs.

Menntun og störf: Starfa sem fulltrúi á framkvæmda- og umhverfissviði Vestmannaeyjabæjar

Fyrri afskipti af stjórnmálum: Hef alla tíð haft mikinn áhuga á stjórnmálum. Var í stjórn Eyverja og Hugins í Garðabæ, setið í nokkrum nefndum í Garðabæ fyrir Sjálfstæðisflokkinn á síðustu kjörtímabilum. Var framkvæmdastjóri Norðurlandasamtaka ungra hægri manna 2001-2003 og sat í stjórn SUS 1999-2005.

Af hverju Sjálfstæðisflokkurinn? Ég hef alltaf haft trú á frelsi einstaklingsins og að fyrirtæki og einstaklingar taki eigin ákvarðandi án afskipta hins opinbera.

Brýnustu verkefni: Klára þarf framkvæmdir við Landeyjahöfn þannig að höfnin nýtist betur allt árið. Tryggja fjármögnun ríkissins á Almannavarnarvatnslögninni.

Halda áfram að byggja upp aðstæður þannig að fjölbreytt atvinnulíf blómstri í Eyjum því það er grundvöllur þess að ungt menntað fólk setjist að í Eyjum og samfélagið hér stækki og eflist. Þá þarf að tryggja áframhaldandi uppbyggingu á grunn- og leikskólunum í Eyjum.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Öll málefnin sem tengjast bæjarstjórninni eru áhugaverð. Í núverandi vinnu minni í Ráðhúsinu tengist ég framkvæmda- og umhverfismálum og þekki ég því þá vinnu vel. En ég hef jafnframt áhuga á að gera vel málefnum fjölskyldna á sem breiðustum grunni.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Framtíðin er björt ef við spilum rétt úr hlutunum og stöndum áfram saman sem samfélag. Það er stutt í að íbúar verði 5000 á ný og þá þarf að huga að öflugum innviðum atvinnulífs og fjölskyldna. Ég er svo bjartsýnn að ég trúi að Landeyjahöfn verði kláruð og við fáum jákvæðar niðurstöður í þær jarðgangnarannsóknir sem Eyjagöng vinna að. Sterk liðsheild Eyjamanna skilar öllum árangri, hvort sem það er í atvinnulífinu, á íþróttavellinum eða við önnur dagleg störf.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins: Ég trúi því að góð og heiðarleg stjórnmál byggist á nálægð, trausti og sterkri liðsheild. Mig langar að leggja mitt af mörkum, taka ábyrgð og vinna að því að gera gott samfélag enn betra. Ég vil nálgast verkefnin af heilindum, með opnum huga og í góðu samtali og samstarfi við alla bæjarbúa.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Að við Eyjamenn, búsettir í Eyjum og brottfluttir, getum áfram sagt stolt frá að við séum frá Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Öflugur rekstur lykilatriði
Rúmlega hundrað konur á Mey kvennaráðstefnu
Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.
“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla
ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram
Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.