Metþátttaka í The Puffin Run í ár
The Puffin Run 2025. Ljósmynd/Friðrik Björgvinsson

Hið árlega Puffin Run fer fram í níunda sinn laugardaginn 2. maí og stefnir í sögulegan viðburð. Við heyrðum í Magnúsi Bragasyni einum af skipuleggjendum hlaupsins, og segir hann að metþátttaka verði í ár.

„Alls eru 1.800 hlauparar skráðir, sem er nýtt met. Hlaupið hefur vaxið jafnt og þétt frá upphafi þess árið 2018 þegar 80 manns hlupu. Flestir hlaupa heilan hring, 20 km leið umhverfis Heimaey. Einnig er boðið upp á tvímenningshlaup, 2 x 10 km, og fjögurra manna boðhlaup, 4 x 5 km.“

Tafla/Magnús Bragason

Fjölmennasta utanvegahlaup Íslands

The Puffin Run er í dag fjölmennasta utanvegahlaup Íslands og einn vinsælasti hlaupaviðburður landsins. Magnús segir að fallegt umhverfi og góðir brautarverðir séu aðalsmerki hlaupsins, en nærri 300 manns starfa við hlaupið. Áætlað er að um 3.000 gestir komi til Eyja með Herjólfi þessa helgi, en margir mæta strax á föstudeginum þar sem hann er frídagur.

Að sögn Magnúsar ætla Norðlendingar að fjölmenna í ár. Hlaupahópar frá Akureyri og Svalbarðseyri koma og meðal þeirra er ofurhlauparinn Þorbergur Jónsson, sem tekur þátt í The Puffin Run í fyrsta skipti.

Fjölmennasta utanvegarhlaup landsins. Ljósmynd/Friðrik Björgvinsson

Hörð samkeppni

Magnús segir að keppnin um að komast á verðlaunapall verði hörð, þar sem margir af bestu hlaupurum landsins taka þátt. „Andrea Kolbeinsdóttir verður með, en hún hefur unnið síðustu fjögur ár og á brautarmetið. Hún fær sterka keppni frá Elísu Kristinsdóttur, einum fremsta utanvegahlaupara landsins, sem sigraði m.a. í Akrafjall Ultra, Esju-hálfmaraþoni og 100 km Gyðjunnar í fyrrasumar. Í karlaflokki mætir heimamaðurinn og brautarmethafinn Hlynur Andrésson aftur til leiks. Hann fær harða keppni frá Sigurjóni Erni, sem sigraði árið 2019, og Arnari Péturssyni, sem vann þrjú ár í röð, 2022 til 2024.“

Góðar líkur eru á því að hlaupinu verði sjónvarpað í beinni útsendingu, en fjölmiðlamennirnir Garpur Elísabetarson og Snorri Björnsson vinna nú að því verkefni.

Öll aðstoð vel þegin

Undirbúningsvinna er í fullum gangi við að laga brautina og skipuleggja viðburðinn. “Við höfum fundið fyrir velvild samfélagsins og eru allir boðnir og búnir að hjálpa við hlaupið. Það er alltaf þörf á aðstoð og mega þeir sem vilja starfa með, hringja í okkur eða senda skilaboð”  sagði Magnús að lokum.

Sjálfboðaliðar standa vaktina. Ljósmynd/Friðrik Björgvinsson

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.