
Á morgun, miðvikudaginn 22. apríl, mætast ÍBV og Haukar í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna. Staðan í einvíginu er jöfn, 1–1, og því ljóst að mikið er undir þegar flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:30.
Undirbúningur ÍBV-liðsins er í fullum gangi en Halldór B. Halldórsson kíkti á æfingu liðsins í gær þar sem æft var af krafti fyrir leikinn mikilvæga. Myndband frá æfingunni má sjá hér að neðan.
Í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV segir að allt sé klárt fyrir stórleik: Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn heldur áfram og spennan eykst með hverjum leik. Staðan er 1–1 og stefnan er sett á heimasigur. Upphitun hefst klukkan 17:30, klukkutíma fyrir leik.
Handknattleiksdeild ÍBV hvetur Eyjamenn til að fjölmenna á leikinn og styðja liðið í baráttunni um sæti í úrslitum. Leikurinn skiptir gríðarlega miklu máli og því er kallað eftir öflugum stuðningi. Mætum og hvetjum stelpurnar áfram til sigurs!