Núna eru liðnir 9 dagar síðan ég sendi hugleiðingar mínar frá Eyjum á Eyjólf innviðaráðherra og Kristrúnu forsætisráðherra. Síðan bættist Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, við um helgina.
Pabbi spurði mig í gær hver væri að hjálpa mér að skrifa þessa pistla? Ég var nú smá hissa á þessari spurningu. Ég hef nú gefið út bók ásamt öðrum ljósmæðrum og titla mig oft hérna heima sem rithöfund við litlar undirtektir hjá drengjunum mínum. En þessi ummæli frá pabba mínum ristu nú ekki djúpt. Ég held að það hafi komið honum og mér á óvart hversu margir hafa gefið sér tíma til að lesa þessar hugleiðingar mínar.
Pabbi minn, Palli í Vegg, eins og hann er oft kallaður, er fæddur og uppalinn hér í Eyjum. Hann er einmitt einn af þessum Eyjamönnum sem gengur í verkin og vill að allt sé gert í gær. Það sama má segja um fyrrum yfirlögregluþjón sem ég hitti fyrir utan Oddfellow þegar við vorum að undirbúa fermingarveisluna. Sveittur og útitekinn (samt ekki eftir sólina í Eyjum þó svo að vorið sé komið) var Geir Jón ásamt öðrum sjálfboðaliðum á fullu að klára endurbætur á þessu fallega húsi. Það vantar ekki drifkraftinn í fólkið hér í Vestmannaeyjum!

Kjartan Vídó Ólafsson, sjálfstæðismaður með meiru, benti á það í pistli sínum á dögunum að kannski ættum við Eyjamenn að taka yfir dýpkun í Landeyjahöfn. Ég held bara svei mér þá að það sé mjög góð hugmynd og ein sú besta sem ég hef heyrt í langan tíma.
Það heyrist eitthvað svo lítið í þingmönnum Suðurlands núna þegar við köllum eftir aðgerðum í Landeyjahöfn. Guðrún Hafsteinsdóttir (Sjálfstæðisflokki) og Karl Gauti Hjaltason (Miðflokki) hafa vakið athygli á slæmum samgöngum hér í Eyjum og þökkum við þeim kærlega fyrir það. En ég veit ekki til þess að heyrst hafi frá Sigurði Inga (Framsókn), Ásthildi Lóu (Flokki fólksins), Söndru (Viðreisn) né Víði (Samfylking).
Maðurinn minn deildi nú færslu minni á Facebook eftir að hafa þurft að aflýsa ferð lögreglumanna til Eyja sem fyrirhuguð var næstu helgi og merkti hann Víði í sinni færslu.
Í gær tók ég einn rúnt niður á bryggju til að kíkja á Karl prins, kjarnaborinn sem kominn er til Eyja til að gera rannsóknir fyrir væntanleg jarðgöng. Það er svo gaman að fylgjast með hvernig Eyjamenn og fjárfestar eru búnir að drífa þetta verkefni í gang. Það er ekkert verið að bíða eftir að ríkið fari í þessa vinnu.
Ég veit ekki hvort Eyjólfur og Kristrún ætli að þiggja heimboðið mitt. Kannski ætti ég að bjóða Sigurði Inga líka í heimsókn. Hann er nú bóndi og hefur ef til vill eitthvað vit á hænum. Mig vantar að fá smá ráð varðandi kjúklingana mína.
Ef þessir þingmenn og ráðherrar myndu koma í kaffi þá myndi ég nú ekki bjóða upp á afganga úr fermingarveislunni enda eru þeir allir komnir í frysti. Ég gæti beðið mömmu um að baka fyrir mig og systur hennar sem kom alla leið frá Eskifirði til að mæta í ferminguna. Þær systur vantar nefnilega einhver verkefni svo þeim leiðist ekki því vegna skorts á ferðum milli lands og Eyja kemst systir mömmu og eiginmaður hennar ekki strax heim til sín. Þau eru númer 18 á biðlista með bílinn sinn á fimmtudaginn, sem er eftir 3 daga.

Hin systir hennar mömmu komst frá Eyjum í gær en það gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig þar sem hlerinn á Herjólfi stóð á sér og tók um 20 mínútur að koma því aftur í lag.
Ég frétti af því að það voru fullt af ÍBV-krökkum að koma með Herjólfi og Baldri í gær. Bæði skipin sigldu frá Þorlákshöfn því Baldur kom að vestan og tók upp farþega á leið sinni til Eyja. Það voru 6 ára börn sem voru að keppa upp á landi – já, þau byrja ung þessar elskur að flækjast milli lands og Eyja til að keppa í íþróttum.
Krakkar hér í Eyjum vita mikið um veður, sjólag og hvaða áttir eru hagstæðastar fyrir siglingar upp á fasta landið. Enda alast þau upp við að mikið sé rætt um þessa hluti alla daga, allt árið um kring. Ég veit hreinlega ekki hvað við Eyjafólk eigum að tala um þegar samgöngur hér verða komnar í samt lag.
Þessir krakkar komu í höfn eftir miðnætti í nótt og mættu síðan í skólann í morgun. Þetta mega börnin búa við hér í Eyjum og ég dáist að þeim – löng ferðalög, lítill svefn og óvissa. En svo er það líka öll þessi mót og leikir sem þarf að aflýsa vegna veðurs og/eða vegna skorts á samgöngum.
Álfsnesið er við bryggju hér í Eyjum og bíður færis að fara aftur upp í Landeyjahöfn til að dýpka. Það er gott veður, sólin skín, en ölduhæð og lítið dýpi gerir það að verkum að þeir geta ekki dýpkað.
Það er gott að muna að allir eru að reyna að gera sitt besta – starfsmenn á Álfsnesinu, Herjólfi og Baldri, svo ég tali nú ekki um starfsfólkið á skrifstofu Herjólfs. Þau hafa nóg að gera við það að breyta ferðum hjá farþegum sem eiga bókað og endurgreiða ferðir til þeirra sem hætta við að ferðast vegna langra siglinga milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar.
Mig langar að þakka öllum sem hafa sent fallegar kveðjur síðustu daga. Það er svo fallegt samfélag hér í Eyjum – konur sem vildu lána mér egg svo ég gæti farið að baka fyrir ferminguna og ég finn að við stöndum saman.
Ef fólk er að hugsa um að flytja út á land þá mæli ég alveg með að flytja til Vestmannaeyja. Það eru bara samgöngurnar sem þarf að laga og ég hef fulla trú á að ráðamenn fari að hlusta á okkur og grípa til aðgerða.
Ég vona svo innilega að þeir fari að svara mínum tölvupóstum svo ég geti hætt að skrifa þessar hugleiðingar mínar. Ég hef nóg annað að gera – og hver nennir að lesa þessa pistla marga daga í viðbót?
Með von um svör og aðgerðir
Kveðja,
Þórunn, íbúi í Vestmannaeyjum
Endilega deilið að vild.