Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
24 DSC 4724
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum birtu í dag tilkynningu á vef sínum um stöðu samgöngumála Eyjamanna. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs á mánudag, þar sem farið var yfir alvarlega stöðu og þær aðgerðir sem unnið er að í kjölfarið.

Vegamálastjóri og fulltrúar Vegagerðarinnar sátu fund bæjarráðs Vestmannaeyja í gær í gegnum fjarfundarbúnað þar sem farið var yfir alvarlega stöðu samgöngumála með sérstakri áherslu á aðstæður í Landeyjahöfn. Bæjarráð kom því skýrt á framfæri að ástandið í samgöngumálum væri óboðlegt með öllu. Vegamálastjóri tók undir að staðan væri alvarleg.

Fulltrúar Vegagerðarinnar gerðu grein fyrir stöðu dýpkunar í Landeyjahöfn og kom fram að vel hefði gengið að dýpka um helgina. Jafnframt kom fram í máli þeirra að frá og með þriðjudeginum 21. apríl ætti að vera hægt að dýpka daglega á flóðum og þegar dýpi í hafnarmynni hefur náð fjórum metrum verður einnig unnt að dýpka allan sólahringinn. Stefnt er að mælingu á dýpi á morgun fimmtudag ef vel gengur að dýpka.

Á fundinum kom fram að bæjarstjóri hefði sent erindi fyrir hönd bæjarráðs til innviðaráðherra og vegamálastjóra vegna stöðu samgöngumála og kröfu um viðbrögð.

Í erindinu er meðal annars kallað eftir viðbótaraðila til dýpkunar í Landeyjahöfn, fjölgun flugferða til og frá Vestmannaeyjum og skýrri viðbragðsáætlun komi til þess að Herjólfur IV geti ekki sinnt áætlunarsiglingum. Þar sem engin ósk hefur borist af hálfu Innviðaráðuneytisins hefur Vegagerðin ekki bætt við flugi.

Bæjarstjóri áréttaði að skipið Baldur dygði ekki sem varaskip fyrir Vestmannaeyjar, hvorki hvað varðar flutningsgetu né aðstöðu fyrir farþega þegar siglt er til Þorlákshafnar. Af hálfu Vegagerðarinnar kom fram að Herjólfur III væri til skoðunar sem varaskip og verið að gera hann kláran til að geta brugðist við stöðunni ef leysa þarf Herjólf IV af.

Loks benti bæjarráð á mikilvægi þess að Vegagerðin upplýsi íbúa reglulega og skýrt um stöðu samgöngumála á meðan ástandið er með þessum hætti.

Nýjustu fréttir

Barnamenningardagar settir í dag
Efri árin skipta máli
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Emil Gautason í lokahóp u-16
Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 
Fyrstu borsýni komin upp úr jörðu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.