Barnamenningardagar settir í dag
Stakkagerðistún iðaði af lífi í morgun.
Halldor B Staff
Halldór B. Halldórsson

Barnamenningardagar Suðurlands hófust í dag með formlegri setningu en hátíðin er haldin dagana 22.–24. apríl. Um er að ræða samstarfsverkefni allra sveitarfélaga á Suðurlandi þar sem áhersla er lögð á sköpun, gleði og þátttöku barna og ungmenna.

Setningin fór fram í Stakkó þar sem fjölbreytt dagskrá setti tóninn fyrir komandi daga. Þar komu meðal annars fram nemendur úr grunnskólum bæjarins með söng og dansi, auk þess sem verðlaun voru afhent í ljósmyndakeppni barnamenningardaganna. Að setningu lokinni var opnuð myndlistarsýning nemenda 7. bekkjar í Einarsstofu.

Á barnamenningardögum fá börn og unglingar í Vestmannaeyjum að njóta sín í fjölbreyttu hlutverki – sem listamenn, þátttakendur og hugmyndasmiðir. Dagskráin spannar meðal annars vinnustofur, sýningar, tónlist, sögustundir og fjölskylduviðburði þar sem sköpun og þátttaka eru í forgrunni.

Á morgun, sumardaginn fyrsta, tekur við áframhaldandi dagskrá með opnum viðburðum víðs vegar um bæinn, þar á meðal safnastarfi, leikjum og fjölskylduskemmtun. Hátíðinni lýkur svo á föstudag með tónlistaratriðum og viðburðum fyrir alla fjölskylduna.

Barnamenningardagar Suðurlands marka tímamót í menningarstarfi á svæðinu og er markmið þeirra að skapa vettvang þar sem börn fá að tjá sig í gegnum listir og upplifa sitt nærumhverfi á skapandi hátt. Halldór B. Halldórsson fylgdist með opnunardeginum í gegnum linsuna. Myndbandið má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2
Barnamenningardagar settir í dag
Efri árin skipta máli
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Emil Gautason í lokahóp u-16
Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.