Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Bæjarstjóri lýsir vonbrigðum við svörum innviðaráðherra.

Aðsend grein

Íris Róbertsdóttir

Þann 15. apríl sendi bæjarráð svofellt erindi til innviðaráðherra

Svar innviðaráðherra:

“Ég tek undir með þér að ástand í samgöngumálum Vestmannaeyja hefur verið afar erfitt undanfarið og full ástæða er til að rýna í stöðuna og leita leiða til eflingar.

Varðandi þær óskir sem þú settir fram í tölvupóstinum hér að neðan

Dýpkun hafnarinnar.

Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins hafa dýpkunaraðgerðir gengið vel frá því síðustu helgi, fyrir utan síðasta mánudag. Vonir hafa staðið til að ásættanlegt dýpi verði komið í hafnarminnið fyrir helgi þannig að Herjólfur gæti farið að sigla þangað. Spá um ölduhæð um næstu helgi ku þó vera óhagstæð og gæti sett strik í reikninginn. Í öllu falli er, skv. upplýsingum ráðuneytisins, það nú spurning um daga frekar en vikur hvenær Landeyjahöfn opni aftur fyrir ferjusiglingum. Ekki er því talin ástæða eins og er til þess að leita út fyrir landsteina með annað dýpkunarskip.

Fjölgun flugdaga.

Ráðuneytið hefur beitt sér fyrir því í fjórgang að tímabil áætlunarflugs til Vestmannaeyja sé framlengt, tvær vikur í hvert sinn, vegna ástandsins. Fyrstu skipti fjármagnaði ráðuneytið úr varasjóði málaflokksins. Nú er svo komið að sá sjóður getur ekki fjármagnað meir, og því var síðasta framlenging fjármögnuð með framlagi úr almennum varasjóði ríkisins. Ráðuneytið mun kanna möguleika á fjölgun flugdaga og hvort mögulegt verði að fjármagna slíkt úr almennum varasjóði.

Áætlun vegna bilunar Herjólfs.

Herjólfur IV var í slipp í Þorlákshöfn á mánudag til þess að losa hina biluðu vél. Sú vinna gekk hratt og vel fyrir sig og kláraðist um kvöldið og hann fór að sigla aftur í gær. Baldur leysti af tímabundið, en er nú aftur farinn til siglinga á Breiðafirði.  Hjá Vegagerðinni er nú unnið að því að koma Herjólfi III á haffæri, svo hann geti nýst í afleysingu. Viðgerð á vél Herjólfs IV er áætluð 7 vikur. Á meðan mun skipið sigla á einni vél. Ef þörf skapast munu Baldur, og síðan Herjólfur III vera kallaðir til að leysa af.”

Fyrir hönd bæjarráðs hefur bæjarstjóri svarað og lýst vonbrigðum með viðbrögð ráðherra.

Bæjarráð telur að ráðherra hefði þurft að bregðast  með mun öflugri hætti við þeim þremur atriðum sem upp eru talin, enda staðan afleit.

Ráðið leggur þunga áherslu á að áætlunarflug til Eyja verði framlengt og bætt við ferðum á meðan þetta ástand varir og að aukið verði við dýpkunargetuna.

Ráðið lýsir ánægju með að verið sé að koma Herjólfi lll í notkunarhæft ástand. Það er nauðsynlegt að hafa hann tilbúinn til að hægt sé að bregðast við ef upp kemur bilun i Herjólfi lV.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.