15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
128 klst á ferðalagi frá áramótum
Trausti um samgöngumál.

Aðsend grein

Trausti Hjaltason

Samgöngur: Ráðherra verður að grípa til aðgerða

Sönn saga: 15 ára íþróttastelpa úr Eyjum hefur misst úr 12 skóladaga á skólaárinu vegna samgönguvanda. Hún hefur verið í ferðalagi í 128 tíma frá áramótum. Hefðu samgöngur verið í lagi hefði hún ekki misst út einn dag í skólanum og verið í 80 tíma á ferðalagi.

Staðan í samgöngum við Vestmannaeyjar er óásættanleg. Bæði Herjólfur og Landeyjahöfn eru lykilinnviðir fyrir samfélag sem skilar þjóðarbúinu miklum verðmætum. Nú þarf aðgerðir strax, ekki fleiri skýrslur eða bið.

Landeyjahöfn

Til skemmri tíma

· Fá öflugri og reynslumeiri aðila til dýpkunar hafnarinnar strax. Núverandi búnaður hefur ekki skilað ásættanlegum árangri.

· Ljúka við búnað til dýpkunar við hafnargarða þar sem mælingar sýna dýpisvandan einna mestan þar, tækifæri til úrbóta.

Til lengri tíma

· Hefja tafarlaust framkvæmdir við varanlegar úrbætur á höfninni samkvæmt tillögum sem beðið hefur verið eftir of lengi.

Herjólfur

Til skemmri tíma

· Tryggja fullnægjandi varaskip þegar Herjólfur fer í slipp eða bilar. Núverandi staða er ekki boðleg.

· Leigja viðbótarferju yfir sumartímann þegar uppselt er mánuðum saman.

· Auka tíðni ferða og bæta aðstöðu í höfnum, meðal annars með nýrri ekkjubrú.

· Skoða hraðskreiðari ferju til leigu yfir vetrarmánuði á leiðinni til Þorlákshafnar þegar Landeyjahöfn lokast.

Til lengri tíma

· Hefja undirbúning að smíði nýrrar ferju strax. Góð forvinna sparar tíma og fé.

Ábyrgð ráðherra

Núverandi fjármögnun dugar ekki. Það þarf að setja fjármagn í:

· varanlegar úrbætur í Landeyjahöfn

· betra varaskip og viðbótarferjur

· undirbúning nýrrar ferju

· heilsárs flugsamgöngur

Nú þarf ráðherra að sýna forystu, grípa til aðgerða strax, leggja fram skýra framkvæmdaáætlun og tryggja meiri fjármuni í ásættanlegar samgönur.

Trausti Hjaltason

Þjálfari 4. fl kvk í fótbolta, faðir og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag
Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.