Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
DSC 1403
Magnús Stefánsson.

Aðsend grein

Magnús Stefánsson

Lykillinn að því að þessi framkvæmd verði til fyrirmyndar liggur í þeirri gríðarlegu sérþekkingu sem finnst innan veggja hússins. Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar, þjálfarar og aðrir á vegum ÍBV eru þeir sérfræðingar sem lifa og hrærast í þessu umhverfi á hverjum degi. Þau búa yfir hagnýtri þekkingu á flæði, nýtingu og þörfum iðkenda sem erfitt er að lesa út úr teikningum einum saman.

Ég ákvað því að setja niður nokkra punkta varðandi minn vinnustað. Á þessum vinnustað eyði ég miklum tíma, börnin mín eyða þar líka miklum tíma og í raun börnin okkar flestra. Mamma og Pabbi, Amma og Afi eyða hér drjúgum tíma líka og því skiptir þetta máli fyrir marga. Það skiptir miklu máli að sú mikla uppbygging sem nú er framundan í Íþróttamiðstöðinni okkar heppnist eins vel og hugsast getur. Það er jákvætt að við séum í framkvæmdargír og að við séum að hugsa til þess að lyfta aðstöðunni okkar á hærra plan og hvernig þjóna megi samfélaginu í Eyjum um ókomna tíð. Hér þarf gagnsæi og gott upplýsingaflæði.

Sem starfsmaður ÍBV í þessu húsi tel ég það skyldu mína að horfa á heildarmyndina og tryggja að fjárfestingin skili sér sem best. Eins og staðan er í dag vitum við að ýmislegt í núverandi húsnæði þarfnast lagfæringar, svo sem lýsing í íþróttasölum og geymslum, sem er bæði öryggis- og vinnuumhverfismál. Við vitum að þakið í sal 2 og 3 lekur þegar það rignir, gömlu klefarnir eru einfaldlega ónýtir, salur 1 þarfnast gríðarlega mikils viðhalds svo hægt sé að tryggja eðlilega notkun hans til framtíðar og svo mætti lengi telja. Með því að samþætta þessar nauðsynlegu viðgerðir við nýframkvæmdirnar getum við komið í veg fyrir „bútasaum“ og búið til eina samfellda og glæsilega heild.

Ég hvet okkur til að sýna það forystuhlutverk sem góðum leiðtogum sæmir og kalla þetta fólk að borðinu strax á þessu stigi. Með því að opna á samtalið og fara yfir fyrirhugað skipulag með þeim sem nota húsið, tryggjum við nokkra mikilvæga þætti:

  • Hagkvæmni: Við komum í veg fyrir dýr mistök eða breytingar sem þarf að gera eftir á vegna óhentugrar uppsetningar.
  • Eignarhald og samheldni: Starfsfólk sem fær að hafa áhrif á sitt vinnuumhverfi sýnir meira eignarhald og starfsánægju, sem skilar sér beint í betri þjónustu við bæjarbúa.
  • Fagmennska: Við sýnum að við treystum okkar fólki og nýtum þá dýrmætu reynslu sem það býr yfir.

 

Magnús Stefánsson

Deildarstjóri Hamarsskóla, þjálfari meistaraflokks kvk og 4. fl. kvk í handbolta, faðir og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Vonbrigði með dýpkun
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
Líf og fjör á barnamenningarháíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag
Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.