Lykillinn að því að þessi framkvæmd verði til fyrirmyndar liggur í þeirri gríðarlegu sérþekkingu sem finnst innan veggja hússins. Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar, þjálfarar og aðrir á vegum ÍBV eru þeir sérfræðingar sem lifa og hrærast í þessu umhverfi á hverjum degi. Þau búa yfir hagnýtri þekkingu á flæði, nýtingu og þörfum iðkenda sem erfitt er að lesa út úr teikningum einum saman.
Ég ákvað því að setja niður nokkra punkta varðandi minn vinnustað. Á þessum vinnustað eyði ég miklum tíma, börnin mín eyða þar líka miklum tíma og í raun börnin okkar flestra. Mamma og Pabbi, Amma og Afi eyða hér drjúgum tíma líka og því skiptir þetta máli fyrir marga. Það skiptir miklu máli að sú mikla uppbygging sem nú er framundan í Íþróttamiðstöðinni okkar heppnist eins vel og hugsast getur. Það er jákvætt að við séum í framkvæmdargír og að við séum að hugsa til þess að lyfta aðstöðunni okkar á hærra plan og hvernig þjóna megi samfélaginu í Eyjum um ókomna tíð. Hér þarf gagnsæi og gott upplýsingaflæði.
Sem starfsmaður ÍBV í þessu húsi tel ég það skyldu mína að horfa á heildarmyndina og tryggja að fjárfestingin skili sér sem best. Eins og staðan er í dag vitum við að ýmislegt í núverandi húsnæði þarfnast lagfæringar, svo sem lýsing í íþróttasölum og geymslum, sem er bæði öryggis- og vinnuumhverfismál. Við vitum að þakið í sal 2 og 3 lekur þegar það rignir, gömlu klefarnir eru einfaldlega ónýtir, salur 1 þarfnast gríðarlega mikils viðhalds svo hægt sé að tryggja eðlilega notkun hans til framtíðar og svo mætti lengi telja. Með því að samþætta þessar nauðsynlegu viðgerðir við nýframkvæmdirnar getum við komið í veg fyrir „bútasaum“ og búið til eina samfellda og glæsilega heild.
Ég hvet okkur til að sýna það forystuhlutverk sem góðum leiðtogum sæmir og kalla þetta fólk að borðinu strax á þessu stigi. Með því að opna á samtalið og fara yfir fyrirhugað skipulag með þeim sem nota húsið, tryggjum við nokkra mikilvæga þætti:
Magnús Stefánsson
Deildarstjóri Hamarsskóla, þjálfari meistaraflokks kvk og 4. fl. kvk í handbolta, faðir og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum