Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Stelpurnar byrja Bestu deildina af krafti. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta byrjar Bestu deild kvenna á sigri en þær mættu Fram á Lambhagavellinum, í miklum markaleik í fyrstu umferð deildarinnar, í dag. Leiknum lauk með 3-4 sigri Eyjakvenna.

Fram byrjaði leikinn betur en þær komust yfir eftir aðeins tvær mínútur þegar Taylor Marie Hamlett skoraði eftir fyrirgjöf og kom Fram í 1-0. Eyjakonur jöfnuðu leikinn aðeins tveimur mínútum síðar. Boltinn datt fyrir Fridrikku Maire Clementsson inn á teig Fram eftir hornspyrnu og setti hún boltann í netið af öryggi. Eyjakonur komust í 1-2 eftir 20. mínútur þegar Allison Patricia Clark átti fyrirgjöf og Emma Kate Young skallaði boltann í eigið mark. Þriðja mark ÍBV kom undir lok fyrri hálfleiks þegar Allison Lowrey kom boltanum yfir línuna eftir klafs á teig Fram eftir hornspyrnu. Staðan í hálfleik 1-3.

Fram pressaði ÍBV vel í síðari hálfleik í leit að marki. Framkonur minnkuðu muninn á 75. mínútu þegar Alda Ólafsdóttir slapp ein í gegn og setti boltann yfir Guðnýju Geirsdóttir í marki ÍBV. Staðan 2-3. Það var engin önnur en Allison Grace Lowrey sem skoraði fjórða mark ÍBV og sitt annað mark í leiknum þegar hún slapp ein í gegn og setti boltann örugglega fram hjá markverði Fram. Fram konur klóruðu í bakkann í uppbótartíma þegar Taylor Marie Hamlett skoraði af stuttu færi. Lokatölur leiksins 3-4 og gríðarlega mikilvægur sigur ÍBV staðreynd.

ÍBV er komið með þrjú stig líkt og Víkingur Reykjavík og ríkjandi Íslandsmeistarar Breiðabliks sem unnu sína leiki í gær. 

ÍBV leikur fyrsta heimaleik sinn í deildinni, gegn Víkingi Reykjavík, fimmtudaginn 30. apríl kl. 18:00.

Fyrsta umferð Bestu deildar kvenna:

Breiðablik 2 – 0 Þróttur Reykjavík

Víkingur Reykjavík 2 – 1 Stjarnan

Fram 3 – 4 ÍBV

Tveir síðustu leikir umferðarinnar hefjast kl. 16:00 í dag:

Valur – Grindavík/Njarðvík

Þór/KA – FH

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
viðburðir
26. apríl 2026
11:00
Stóri plokkdagurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.