ÍBV tapaði gegn Haukum - Oddaleikur framundan
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Haukum í fjórða leik liðanna í undanúrslita einvíginu milli þessar liða, í úrsllitakeppni Olís deildar kvenna, á Ásvöllum í dag. Leiknum lauk með þriggja marka sigri, 26-23, Hauka og er staðan nú 2-2 í einvíginu. Með sigrinum tryggðu Haukar sér oddaleik sem fer fram í Vestmannaeyjum.

Jafnræði var með liðunum framan af í fyrri hálfleik og var staðan 6-6 eftir 20 mínútur. Haukar komust í 9-6 stuttu síðar og voru með forystuna það sem eftir lifði hálfleiks. Staðan í hálfleik 11-10 Haukum í vil.

Eyjakonur komust yfir, 12-13, í upphafi síðari hálfsleiks og skiptust liðin á að vera með eins marks forskot. Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka voru Hauka konur hins vegar komnar með þriggja marka forystu, 19-16. Eyjakonur reyndu hvað þær gátu að brúa bilið en Sara Sif Helgadóttir, markvörður Hauka, átti stórleik og lokaði markinu. Haukar náðu mest fjögurra marka forystu og unnu að lokum þriggja marka sigur. Lokatölur leiksins 26-23.

Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst í liði ÍBV með fimm mörk. Amalia Frøland varði 11 skot í marki ÍBV og Ólöf Maren Bjarnadóttir tvö.

Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 5 mörk, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Birna María Unnarsdóttir 2, Britney Emelie Florianne Cots 2, Ásdís Halla Hjarðar 1, Sandra Erlingsdóttir 1. 

Fimmti og síðasti leikurinn í einvíginu fer fram í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 28. apŕil kl. 19:30. Það lið sem ber sigur úr býtum í þeim leik fer í úrslitaeinvígið gegn Val um Íslandsmeistaratitillinn. 

 

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.