Fjölskyldudagur Eyjalistans sem fram fór á Stakkagerðistúni í gær, 1. maí, heppnaðist vel og var ágætlega sóttur. Þar ríkti góð stemning og margir bæjarbúar lögðu leið sína á svæðið til að njóta samveru í blíðskaparveðri.
Á túninu var boðið upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna og var greinilegt að bæði börn og fullorðnir kunnu vel að meta dagskrána. Leikur og gleði settu svip sinn á svæðið og skapaðist notaleg hátíðarstemning í hjarta bæjarins.
Að fjölskyldudeginum loknum var fólk hvatt til að mæta í hefðbundið 1. maí kaffi Drífanda í Akóges. Aðstandendur fjölskyldudagsins lýstu ánægju með þátttökuna og sögðu ánægjulegt að sjá hversu margir nýttu tækifærið til að koma saman og njóta dagsins. Fleiri myndir má sjá hér að neðan.

