Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Við erum stolt af því að fá heimsklassa matreiðslumeistara frá Íslandi þetta árið í hlutverk gestakokka á MATEY 2026
Hákon Már, Vilhjálmur og Gústav Axel eru gestakokkar á MATEY í ár. Mynd/samsett.

Framúrskarandi hópur matreiðslumeistara mun taka þátt í MATEY sjávarréttahátíðinni í Vestmannaeyjum dagana 22.-23.maí 2026 en sérhver þeirra hefur markað spor í íslenskri og alþjóðlegri matargerð. Þeir munu skapa einstaka matarupplifun þar sem ferskt íslenskt sjávarfang er í aðalhlutverki á nokkrum af helstu veitingastöðum Vestmannaeyja.

Hákon Már Örvarsson á Gott

Hákon Már er einn reyndasti og virtasti matreiðslumeistari landsins. Hann hlaut bronsverðlaun í Bocuse d’Or og hefur starfað á Michelin-veitingastöðum, meðal annars hjá Léa Linster. Hann hefur gegnt lykilhlutverkum á stöðum á borð við Vox og Hótel Holt og verið í fararbroddi við að kynna íslenskt hráefni á alþjóðavettvangi.

Á MATEY mun Hákon Már elda á GOTT þar sem hann sameinar reynslu, fagmennsku og skapandi nálgun í réttum sem endurspegla það besta úr íslenskri matargerð.

Gústav Axel Gunnlaugsson á Einsa Kalda

Gústav Axel er margverðlaunaður matreiðslumaður og eigandi Sjávargrillsins. Hann var valinn Matreiðslumaður ársins 2010 og hefur síðan þá verið meðal fremstu kokka landsins.

Matreiðsla hans einkennist af kraftmikilli nýsköpun, sterkri tengingu við íslenskt hráefni og alþjóðlegum áhrifum. Á Einsa Kalda mun hann skapa lifandi og bragðmikla upplifun þar sem ferskleiki sjávarfangs og hugvit fá að njóta sín.

Vilhjálmur Sigurðarson á Næs

Vilhjálmur Sigurðarson er íslenskur matreiðslumeistari sem rak Michelin-stjörnu veitingastaðinn Souvenir í Gent. Hann hefur vakið athygli fyrir hugmyndafræði sem byggir á einfaldleika, árstíðabundnu hráefni og djúpri virðingu fyrir frumframleiðendum.

Nálgun hans leggur áherslu á að draga fram kjarna hráefnisins og skapa rétti sem eru bæði hreinskilnir og skapandi. Á Næs mun hann vinna með staðbundið hráefni úr Eyjum og færa gestum upplifun þar sem bragð, hugmyndafræði og náttúran mætast.

Upplifun í hæsta gæðaflokki

Virðing fyrir hráefninu og mikil fagmennska eru sameiginleg hjá þessum matreiðslumönnum er. Á MATEY 2026 mætast ólíkir stílar og bakgrunnur í einni heildstæðri upplifun þar sem Vestmannaeyjar verða miðpunktur íslenskrar matarmenningar.

Við hvetum fólk til að tryggja sér borð sem fyrst á  https://www.visitvestmannaeyjar.is/is/matey-seafood-festival eða á matey.is

Nýjustu fréttir

Herjólfur til Þorlákshafnar
„Fjölskyldan fullyrðir að ég sé að verða níræður“ – Svabbi býður til afmælisveislu
Lára Skærings er óhrædd við að prófa nýja hluti  
Íslendingur vann 336 milljónir!
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.