Framúrskarandi hópur matreiðslumeistara mun taka þátt í MATEY sjávarréttahátíðinni í Vestmannaeyjum dagana 22.-23.maí 2026 en sérhver þeirra hefur markað spor í íslenskri og alþjóðlegri matargerð. Þeir munu skapa einstaka matarupplifun þar sem ferskt íslenskt sjávarfang er í aðalhlutverki á nokkrum af helstu veitingastöðum Vestmannaeyja.
Hákon Már er einn reyndasti og virtasti matreiðslumeistari landsins. Hann hlaut bronsverðlaun í Bocuse d’Or og hefur starfað á Michelin-veitingastöðum, meðal annars hjá Léa Linster. Hann hefur gegnt lykilhlutverkum á stöðum á borð við Vox og Hótel Holt og verið í fararbroddi við að kynna íslenskt hráefni á alþjóðavettvangi.
Á MATEY mun Hákon Már elda á GOTT þar sem hann sameinar reynslu, fagmennsku og skapandi nálgun í réttum sem endurspegla það besta úr íslenskri matargerð.
Gústav Axel er margverðlaunaður matreiðslumaður og eigandi Sjávargrillsins. Hann var valinn Matreiðslumaður ársins 2010 og hefur síðan þá verið meðal fremstu kokka landsins.
Matreiðsla hans einkennist af kraftmikilli nýsköpun, sterkri tengingu við íslenskt hráefni og alþjóðlegum áhrifum. Á Einsa Kalda mun hann skapa lifandi og bragðmikla upplifun þar sem ferskleiki sjávarfangs og hugvit fá að njóta sín.
Vilhjálmur Sigurðarson er íslenskur matreiðslumeistari sem rak Michelin-stjörnu veitingastaðinn Souvenir í Gent. Hann hefur vakið athygli fyrir hugmyndafræði sem byggir á einfaldleika, árstíðabundnu hráefni og djúpri virðingu fyrir frumframleiðendum.
Nálgun hans leggur áherslu á að draga fram kjarna hráefnisins og skapa rétti sem eru bæði hreinskilnir og skapandi. Á Næs mun hann vinna með staðbundið hráefni úr Eyjum og færa gestum upplifun þar sem bragð, hugmyndafræði og náttúran mætast.
Virðing fyrir hráefninu og mikil fagmennska eru sameiginleg hjá þessum matreiðslumönnum er. Á MATEY 2026 mætast ólíkir stílar og bakgrunnur í einni heildstæðri upplifun þar sem Vestmannaeyjar verða miðpunktur íslenskrar matarmenningar.