Félagsmiðstöðvar fyrir unglinga hafa verið starfræktar á Íslandi í fjölda ára, fyrsta félagsmiðstöðin var stofnuð árið 1957 í Reykjavík og markaði hún upphafið að skipulögðu forvarnar- og tómstundastarfi fyrir unglinga hér á landi. Frá þeim tíma hefur starf félagsmiðstöðva tekið miklum breytingum og árið 1985 var SAMFÉS stofnað þar sem tilgangurinn var að efla samvinnu á milli félagsmiðstöðva á landsvísu og efla fagþekkingu starfsfólks til að vinna með unglingum.
Í Vestmannaeyjum er fjölbreytt úrval tómstunda- og íþróttastarfs og geta flest ungmenni fundið eitthvað sem þau hafa áhuga á. Og er Féló eins og félagsmiðstöðin er kölluð, einn af þeim möguleikum sem þau geta valið.
Félagsmiðstöðvar eru ekki einungis staður þar sem börn og unglingar geta varið frítíma sínum, heldur eiga þær að vera öruggur vettvangur fyrir félagslega mótun, þátttöku, tjáningu og tengslamyndun. Og þar á einnig að fara fram forvarnarstarf með óformlegu námi í opnu starfi þar sem allir hafa sama möguleika að vera þátttakendur.
Til að félagsmiðstöðvar geti sinnt þessu hlutverki til fulls skiptir þó ekki aðeins máli hvað fer fram innan veggja þeirra heldur einnig hvar félagsmiðstöðin er staðsett.
Það að hafa félagsmiðstöð staðsetta í nærumhverfi við skóla barna og unglinga eykur líkur á að þau komi við, sem verður jafnvel að reglulegum heimsóknum og í framhaldinu taka þau virkan þátt í starfinu sem þar fer fram. Í dag er Féló staðsett við Strandveg 50 sem er fjarri þeirra daglega lífi, íþróttasvæðum og stórum hluta íbúðahverfa.
Staðsetning skiptir öllu máli og má ekki falla aftarlega á forgangslista þegar hugað er að starfsemi félagsmiðstöðvarinnar, hún getur haft áhrif á þátttöku, jöfnuð og árangur starfsins. Þegar félagsmiðstöð er þar sem ungmennin eru, mæta þau. Þegar hún er ekki þar, taka þau síður þátt.
Með hliðsjón af hlutverki félagsmiðstöðva í forvarnarstarfi, félagslegri mótun og jöfnum tækifærum til að taka þátt er ljóst að staðsetning Féló hefur áhrif á þátttöku barna og unglinga í Vestmannaeyjum.
Til að styrkja tengsl við ungmennin, auka reglubundna þátttöku og tryggja að Féló sinni hlutverki sínu til fulls er brýnt að félagsmiðstöðin komist í nærumhverfi Barnaskólans, þar sem ungmennin eru dagsdaglega. Og þar sem einnig væri möguleiki á að efla starfsemi 16-20 ára með meiri nálægð við Framhaldsskólann.
Undirrituð er tómstunda- og félagsmálafræðingur og var sjálf mjög virkur unglingur í félagsmiðstöðvastarfi.
Eyrún Haraldsdóttir
Skipar 7. sæti Eyjalistans.