Stefnuleysi bæjarstjórnar
Jón Þór Guðjónsson

Aðsend grein

Jón Þór Guðjónsson

Eftir örfáa daga ganga íbúar Vestmannaeyja til kosninga. Ljóst er að miklar breytingar verða á bæjarstjórn, enda líklegt að aðeins einn eða tveir af níu núverandi bæjarfulltrúum haldi áfram störfum. Nýtt fólk tekur þá við, fólk sem í mörgum tilfellum hefur nýjar hugmyndir og skýra sýn á það sem þarf að gera.

Í því ljósi vekur það furðu að núverandi bæjarstjórn skuli kynna fimm ára stefnu í menningarmálum aðeins 15 dögum fyrir kosningar og tveimur árum eftir að vinna við stefnuna hófst.

Stefnumótun á vegum stjórnmálaflokka sem hafa farið með stjórn bæjarins um árabil á ekki að vera skrautefni sem dregið er fram rétt fyrir kjördag. Við í Miðflokknum teljum að vinna eigi að stefnum markvisst allt kjörtímabilið, hvort sem flokkurinn situr í meirihluta eða minnihluta, og kynna þær þegar þær eru tilbúnar, ekki á lokasprettinum fyrir kosningar.

Það sem vekur þó mesta athygli er skortur á skýrri stefnu í mikilvægum málaflokkum, svo sem:

  • Náttúruvernd hrauns og kletta
  • Uppbyggingu íþróttamiðstöðvarinnar
  • Málefnum fatlaðra barna

Náttúruvernd hraunsins og klettanna

Á síðustu árum hafa orðið verulegar framkvæmdir og rask á hrauninu. Þar má nefna breitt og áberandi skarð vegna lagningar nýs rafmagnsstrengs þvert í gegnum friðað svæði. Staðsetning minnisvarða og gerð bílastæða við hann hafa einnig haft áhrif á umhverfið.

Viðbygging við íþróttahúsið hefur sömuleiðis haft umtalsverð áhrif á klettana okkar, þrátt fyrir að hægt hefði verið að skoða aðra útfærslu, til dæmis stækkun til suðurs. Nú eru svo uppi áform um að fjarlægja stóran hluta hraunsins.

Það hefði verið eðlilegt að móta skýra stefnu um vernd þessa einstaka náttúruarfleifðar fyrir löngu síðan.

Íþróttamiðstöðin

Skyndilega varð mjög brýnt fyrir bæjarfulltrúa að kynna hugmyndir um nýja búningsklefa við íþróttamiðstöðina.

Nú hefur verið samþykkt tilboð verktaka og framkvæmdir eiga að standa yfir næstu tvö árin. Á sama tíma eru fyrirhugaðar framkvæmdir hjá World Class á sama svæði. Enn hefur þó ekki verið kynnt hvernig það hús verður hannað né hvernig það mun tengjast núverandi mannvirkjum.

Slík vinnubrögð bera ekki vott um heildarsýn og geta kostað bæjarsjóð verulegar fjárhæðir.

Það hefði verið farsælla að vinna heildstæða stefnu fyrir þennan málaflokk fyrir mörgum árum.

Málefni fatlaðra barna

Í samtölum okkar við íbúa bæjarins kemur skýrt fram að margar fjölskyldur fatlaðra barna telja sig ekki fá þann stuðning og þá þjónustu sem þær eiga rétt á.

Þetta eru skilaboð sem við verðum að taka alvarlega.

Bænum ber ekki aðeins lagaleg skylda til að sinna þessum málaflokki, heldur er hér einnig tækifæri til að gera betur og tryggja fjölskyldum raunverulegan stuðning.

Því miður virðist áhersla núverandi bæjarstjórnar frekar hafa verið á stefnur um menningu, listviðburði og skemmtanir sem kynntar eru rétt fyrir kosningar.

Það hefði verið rétt að setja málefni fatlaðra barna í forgang fyrir löngu síðan.

Skýr framtíðarsýn

Við í Miðflokknum viljum vinna að skýrri og heildstæðri framtíðarsýn í öllum þeim málaflokkum sem skipta samfélagið okkar máli.

Það er mikilvægt fyrir Vestmannaeyjar.

 

Jón Þór Guðjónsson
Oddviti Miðflokksins í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Stefnuleysi bæjarstjórnar
Hugum að staðsetningu Féló fyrir aukna þátttöku ungmenna í samfélaginu
Herjólfur stefnir á siglingar í Landeyjahöfn
Valskonur urðu Íslandsmeistarar í Eyjum eftir sigur á ÍBV
Sjónarhorn flakkarans vígt í hrauninu við Eldfell
Tafir á haffærniskírteini Herjólfs III
Fjör, gleði og glæsileg skemmtun á árshátíð VSV
Forsendur þess að fjölskyldur blómstri
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.