Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar u-18 ára landsliðs karla í handbolta hafa valið hvaða sextán leikmenn munu keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumótinu í sumar.
Mótið fer fram í Serbíu, dagana 29. júlí til 9. ágúst. Ísland er í riðli með Ungverjalandi, Sviss og Svartfjallalandi.
ÍBV á þrjá fulltrúa í hópnum þá Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goða Garner og Sigurmund Gísla Unnarsson.
Sextán mann hópinn má sjá hér að neðan auk þriggja varamanna:
Markverðir
Anton Máni Francisco Heldersson, Val.
Morgan Goði Garner, ÍBV.
Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV.
Aðrir leikmenn:
Alex Unnar Hallgrímsson, Fram.
Anton Frans Sigurðsson, ÍBV.
Bjarki Snorrason, Val.
Brynjar Narfi Arndal, FH.
Freyr Aronsson, Haukum.
Gunnar Róbertsson, Val.
Kristófer Tómas Gíslason, Fram.
Logi Finnsson, Val.
Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjörnunni.
Ómar Darri Sigurgeirsson, FH.
Patrekur Smári Arnarsson, ÍR.
Ragnar Hilmarsson, Selfossi.
Sigurður Atli Ragnarsson, Val.
Varamenn
Aron Leo Guðmundsson, Selfossi.
Kári Steinn Guðmundsson, Val.
Örn Kolur Kjartansson, ÍR.