Sjómannslífið er stór partur af samfélaginu í Vestmannaeyjum og þekkja margir hvernig það er að eiga maka sem vinnur á sjó. Í tilefni sjómannadagsins fengu Eyjafréttir nokkrar sjómannskonur til að svara nokkrum spurningum um lífið með sjómanni, hvernig fjölskyldulífið gengur fyrir sig, kostunum og göllunum við starfið og hefðum tengdum sjómannadeginum.
Fjölskylda? Gift Daníel Andra Kristinssyni og við eigum samtals 4 börn.
Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Í þrjú ár.
Á hvaða skipi er maki þinn? Hann er á Vestmannaey.
Kynnist þið þegar maki er á sjó? Já.
Hefur maki þinn alla ykkar tíð verið á sjó? Hann hefur meira og minna verið það með einhverjum hléum þó.
Hvernig hefur gengið að samræma sjómennsku og fjölskyldulíf? Það getur verið líflegt að samræma það en með góðu kerfi gengur það upp.
Helstu kostir sjómennskunnar? Mikil samvera og sveigjanleiki þegar hann er í landi.
Helstu gallar sjómennskunnar? Mikil fjarvera og að rútínan festist aldrei almennilega í sessi.
Eruð þið með hefð um sjómannahelgina? Í fyrra fórum við í Sjómannadagsmessuna í fyrsta skipti og höfðum hugsað okkur að halda í þá hefð, reyndar uppá landi í þetta árið!
Eitthvað að lokum? Lífið er fiskur!
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.