„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Nýstúdentar ársins 1986 sendu skólanum, starfsfólki og útskriftarnemum 2026 hlýjar kveðjur á tímamótum  
Þorsteinn Gunnarsson og Bergur Elías Ágústsson voru í hópi tólf útskriftarnema FÍV 1986. Mynd Sigurgeir.

Fyrir réttum 40 árum útskrifuðust 12 nemendur sem nýstúdentar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við hátíðlega athöfn í bíósalnum við Heiðarveg. Jafnframt luku níu nemendur verslunarprófi, þrír iðnskólaprófi, tveir námi í grunndeild málmiðna, tveir vélstjóranámi 2. stigs, fimm vélavarðaprófi og fjórir undanþágunámskeiði fyrir vélstjóra. Þá var einnig starfrækt öldungadeild við skólann og stunduðu 30 nemendur nám þar.

Við vorum þriðji hópur nýstúdenta sem útskrifaðist frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Námið hófum við haustið 1982 í húsnæði við Heiðarveg, þar sem Tónlistarskóli Vestmannaeyja er nú til húsa. Ári síðar fluttist skólinn í gamla gagnfræðaskólann, þar sem hann er enn starfræktur. Samkvæmt frásögn Morgunblaðsins frá skólaslitunum voru um 200 nemendur við skólann, átta fastráðnir kennarar og fimmtán stundakennarar. Skólameistari var Ólafur H. Sigurjónsson, sem við minnumst með hlýju og virðingu. Við skólaslitin var jafnframt viðstaddur menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, sem ávarpaði gesti.

Hressilegt félagslíf

Félagslífið var sérlega eftirminnilegt. Árshátíðirnar í Hallarlundi lifa enn í minningunni, þar sem kennarar og nemendur skemmtu sér saman af miklum krafti. Við tókum þátt í Morfís, rökræðukeppni framhaldsskóla landsins, stóðum fyrir íþróttamótum, fórum í eftirminnilegar ferðir til Reykjavíkur og dimmiteruðum að sjálfsögðu með þeim hætti sem tíðkaðist á þeim tíma. Þá var opin vika fastur liður í skólastarfinu þar sem nemendur tóku frumkvæðið, meðal annars með útvarpsrekstri undir hinu eftirminnilega nafni Þvag-rásin, og brutu upp skólastarfið með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti.

Nú, fjórum áratugum eftir útskrift okkar, hugsum við til gamla skólans okkar með miklum hlýhug og þakklæti. Námið við FÍV reyndist okkur traustur grunnur fyrir lífið og framtíðarstörf. Tilvist framhaldsskóla í Vestmannaeyjum þykir sjálfsögð í dag, en á sínum tíma markaði stofnun hans mikil tímamót. Ungt fólk í Eyjum þurfti ekki lengur að flytja burt til að sækja sér framhaldsskólamenntun.

 Miklvæg stoð

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur verið ein af mikilvægustu stoðum samfélagsins allt frá stofnun hans árið 1979, þegar framhaldsdeildir Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum, Vélskólans í Vestmannaeyjum og Iðnskólans í Vestmannaeyjum voru sameinaðar. Skólinn hefur vaxið og dafnað og skipar í dag sér sess meðal framhaldsskóla landsins.

Það vakti sérstaka ánægju að sjá FÍV hljóta Íslensku menntaverðlaunin árið 2025 í flokki iðn- og verkmenntunar, sem er verðskulduð viðurkenning á því metnaðarfulla starfi sem þar hefur verið unnið um árabil. Við óskum skólanum innilega til hamingju með þann áfanga.

Kæri Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum. Kærar þakkir fyrir þá menntun, reynslu og vináttu sem þú gafst okkur. Takk fyrir að hafa einnig menntað börnin okkar og stuðlað að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins.

Til hamingju, kæru nýstúdentar og aðrir útskriftarnemar FÍV árið 2026. Megi ykkur farnast vel á þeirri vegferð sem fram undan er.

Takk fyrir okkur.

Nýstúdentar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum árið 1986:

Arnar Jónsson
Bergur Elías Ágústsson
Bjarni Diðrik Sigurðsson
Hafdís Hannesdóttir
Inga Óskarsdóttir
Kjartan Erlendsson
Margo Renner
Sigmar Valur Hjartarson
Sigurður Friðriksson
Stefán Viktor Guðmundsson
Þorsteinn Gunnarsson
Þröstur Gunnarsson

Nýjustu fréttir

Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur
Frábæru Orkumóti lokið – FH varð Orkumótsmeistari
ÍBV sækir botnlið FH heim
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.