Varðskip danska sjóhersins í heimsókn í Eyjum
Danska varðskipið HDMS Thetis kemur til hafnar í Eyjum í morgun. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Danska varðskipið HDMS Thetis (F357) kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun. Ekki liggur fyrir af hvaða tilefni skipið heimsækir Eyjar, en það hefur undanfarnar vikur verið við verkefni á Norður-Atlantshafi og kom meðal annars við í Reykjavík fyrr í þessum mánuði.

Thetis tilheyrir danska sjóhernum og er eitt fjögurra skipa í Thetis-flokknum sem sinna eftirliti, leit og björgun, fiskveiðieftirliti og fullveldisgæslu á hafsvæðunum við Grænland, Færeyjar og víðar á Norður-Atlantshafi.

Skipið var tekið í notkun árið 1991, er 112 metrar að lengd og getur verið allt að 60 daga samfellt á sjó. Það er ísstyrkt og búið þyrlupalli og flugskýli fyrir þyrlu, sem gerir því kleift að sinna fjölbreyttum verkefnum við erfiðar aðstæður á norðurslóðum.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta náði þessum myndum þegar skipið sigldi til hafnar í morgun.

Nýjustu fréttir

Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.