Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja fór fram dagana 8. – 11. júlí. 97 keppendur voru skráðir til leiks í tíu flokkum, sem er metþátttaka á mótinu.
Örlygur Helgi Grímsson varð klúbbmeistari í karlaflokki í 17. sinn og setti hann nýtt mótsmet, á 13 undir pari. Hann varð einnig fyrsti kylfingurinn til að leika alla hringi mótsins á undir pari.
Sóley Óskarsdóttir varð klúbbmeistari í kvennaflokki og vann sinn þriðja titil í röð.
Eyjafréttir óskar þeim innilega til hamingju með titlana.