Kvennalið ÍBV í fótbolta leikur í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á morgun, föstudag, þegar þær mæta Þrótti Reykjavík á Avis vellinum í Laugardalnum. Stelpurnar tryggðu sér sæti í undanúrslitum með frábærum 3-2 heimasigri á FH, þar sem Allison Grace Lowrey, Allison Patricia Clark og Avery Mae Vanderven skoruðu mörkin fyrir Eyjakonur.
ÍBV og Ísfélagið bjóða upp stuðningsmannaferð á leikinn og hvetja alla stuðningsmenn til að taka ferðina með þeim og hjálpa liðinu að tryggja sér sæti í bikarúrslitum.
Dagskráin er hér að neðan:
Hinn undanúrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn kl. 17:00 á Lambhagavellinum. Þar mætast Fram og Grindavík/Njarðvík.