Hópferð á undanúrslitaleikinn hjá stelpunum á morgun
Úr 8-liða úrslita leiknum gegn FH á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta  leikur í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á morgun, föstudag, þegar þær mæta Þrótti Reykjavík á Avis vellinum í Laugardalnum. Stelpurnar tryggðu sér sæti í undanúrslitum með frábærum 3-2 heimasigri á FH, þar sem Allison Grace Lowrey, Allison Patricia Clark og Avery Mae Vanderven skoruðu mörkin fyrir Eyjakonur. 

ÍBV og Ísfélagið bjóða upp stuðningsmannaferð á leikinn og hvetja alla stuðningsmenn til að taka ferðina með þeim og hjálpa liðinu að tryggja sér sæti í bikarúrslitum. 

Dagskráin er hér að neðan:

  • Herjólfur fer kl. 13:00
  • Hittingur á Ölver fyrir leik
  • Leikurinn hefst kl.  18:00
  • Heimferð með herjólfi kl. 23:00

 

Hinn undanúrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn kl. 17:00 á Lambhagavellinum. Þar mætast Fram og Grindavík/Njarðvík.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.