Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Nýtt hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum ekki næst í röðinni hjá ríkinu
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir Vestmannaeyjabæ lengi hafa kallað eftir því að ríkið byggi nýtt hjúkrunarheimili í Eyjum. Nýtt heimili sé þó ekki næst í röðinni í áætlunum ríkisins. Samsett mynd/Eyjafréttir.

Vestmannaeyjabær hafði hvorki fengið úttektarskýrslu embættis landlæknis um Hraunbúðir í hendur né vitneskju um úttektina sem skýrslan byggir á. Þá hafði Heilbrigðisstofnun Suðurlands ekki haft samband við bæinn vegna niðurstaðna hennar.

Þetta kemur fram í svari Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra við fyrirspurn Eyjafrétta.

Sjá fyrri frétt um málið: Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum

Bærinn eingöngu leigusali

Í skýrslu embættis landlæknis eru meðal annars gerðar athugasemdir við ástand húsnæðis Hraunbúða. Þar kemur fram að húsið hafi upphaflega verið byggt sem bráðabirgðahúsnæði eftir eldgosið 1973, sé að mestu upprunalegt og þarfnist gagngerra endurbóta.

Íris segir rekstur, uppbyggingu og þjónustu Hraunbúða alfarið vera á ábyrgð ríkisins og HSU.

„Vestmannaeyjabær er eingöngu leigusali og mun uppfylla skyldur sínar sem slíkur,“ segir Íris. Hún bætir við að bærinn fagni því að úttektin hafi verið gerð.

Kallað eftir nýju hjúkrunarheimili

Að sögn Írisar hefur Vestmannaeyjabær lengi talað fyrir því að ríkið byggi nýtt hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum. Málið hafi verið rætt formlega við tvo heilbrigðisráðherra og einnig ráðherra sem nú ber ábyrgð á málaflokknum.

Sá ráðherra hafi heimsótt Hraunbúðir og fundað með bæjarráði í vetur. Á fundinum hafi nauðsyn þess að ríkið byggði nýtt hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum verið ítrekuð.

Svör ráðherra hafi hins vegar verið þau að nýtt hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum væri ekki næst í röðinni í áætlunum ríkisins um uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Eyjafréttir hafa einnig óskað eftir viðbrögðum forstjóra HSU vegna málsins. Svörin verða birt um leið og þau berast.

Nýjustu fréttir

Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Háski og félagar senda frá sér þjóðhátíðarlagið „Væntanlega“
Hópferð á undanúrslitaleikinn hjá stelpunum á morgun
Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum
Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.