
Það var líf og fjör í Herjólfsdal á sunnudaginn þegar Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, tók hring um Dalinn og fylgdist með undirbúningi Þjóðhátíðar. Þar var fjölmennt enda lokaspretturinn hafinn og ótal handtök eftir áður en hátíðin verður sett.
Víða mátti sjá kunnugleg andlit úr Þjóðhátíðarslagnum, fólk sem mætir ár eftir ár og leggur hönd á plóg fyrir félagið sitt, ÍBV. Sumir hafa komið að undirbúningnum svo lengi að erfitt er að ímynda sér Þjóðhátíð án þeirra.
Dalurinn er líka óðum að taka á sig sína árlegu Þjóðhátíðarmynd. Brennan á Fjósakletti er klár, vitinn og myllan komin á sinn stað og göturnar í hvíttjaldaborginni tilbúnar. Hvítu tjöldin munu svo rísa hvert af öðru og smám saman verður til þessi einstaka borg sem aðeins stendur í fáa daga en á sér fastan sess í hjörtum Eyjamanna.
Nú styttist í að Herjólfsdalur fyllist af fólki og Þjóðhátíð taki við með öllu sem henni fylgir. Hvítu tjöldunum, brennunni á Fjósakletti, flugeldasýningunni, skemmtun á stóra sviðinu, böllum, brekkusöngnum, blysunum og öllum þeim hefðum sem gera hátíðina einstaka.
En kannski er það þó samveran sem skiptir mestu. Þarna mætast kynslóðirnar, fjölskyldur og vinir koma saman og gamlar hefðir ganga áfram til þeirra yngri.
Veðurspáin fyrir Þjóðhátíðarhelgina er mjög góð og ef hún gengur eftir má búast við miklum fjölda gesta til Eyja. Gott veður setur alltaf punktinn yfir i-ið á Þjóðhátíð og því er full ástæða til bjartsýni þegar stóra helgin nálgast.
Á sunnudaginn var hins vegar enn vinnugallinn við völd. Hamrar, skrúfvélar og vinnufúsar hendur sáu um stemninguna í Dalnum. Á föstudaginn verður svo allt annar og hátíðlegri bragur á þegar Þjóðhátíð verður sett og gestir mæta í sínu fínasta pússi til að fagna upphafi stærstu helgar ársins í Eyjum.
Nú eru aðeins síðustu handtökin eftir. Svo má Þjóðhátíð byrja fyrir mér.

Magnús og Grímur með lærling með sér að setja upp Hofið.

Rúnar Þór í tjörninni.

Spjallið tekið
Stundum þarf að taka gott spjall á milli verka, spá í hlutina og ekki síst hvernig veðrið verði á Þjóðhátíðinni í ár.

Eyjólfur og co.
Eyjólfur, Guðjón og Bassi létu sitt ekki eftir liggja.

Göturnar taka á sig mynd
Valgerður og Binni voru mætt með börnin í Skvísusundið.

Stund milli stríða
Kiddi, Gunnar og Arnar tóku sér smá pásu milli stríða.

Bræðurnir prófa bekkinn
Svanur og Guðjón Gunnsteinssynir nutu góða veðursins í Dalnum á sunnudaginn.
