Allt að verða klárt fyrir Þjóðhátíð
Fjölmennt í Herjólfsdal við lokaundirbúning – Kunnugleg andlit úr Þjóðhátíðarslagnum á hverju strái
Palli í Mörk, sem hefur upplifað fleiri Þjóðhátíðir en flestir, er hér með Ægi syni sínum og Óla Tý, sem láta sig aldrei vanta í Dalinn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Það var líf og fjör í Herjólfsdal á sunnudaginn þegar Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, tók hring um Dalinn og fylgdist með undirbúningi Þjóðhátíðar. Þar var fjölmennt enda lokaspretturinn hafinn og ótal handtök eftir áður en hátíðin verður sett. 

Víða mátti sjá kunnugleg andlit úr Þjóðhátíðarslagnum, fólk sem mætir ár eftir ár og leggur hönd á plóg fyrir félagið sitt, ÍBV. Sumir hafa komið að undirbúningnum svo lengi að erfitt er að ímynda sér Þjóðhátíð án þeirra. 

Dalurinn er líka óðum að taka á sig sína árlegu Þjóðhátíðarmynd. Brennan á Fjósakletti er klár, vitinn og myllan komin á sinn stað og göturnar í hvíttjaldaborginni tilbúnar. Hvítu tjöldin munu svo rísa hvert af öðru og smám saman verður til þessi einstaka borg sem aðeins stendur í fáa daga en á sér fastan sess í hjörtum Eyjamanna. 

Nú styttist í að Herjólfsdalur fyllist af fólki og Þjóðhátíð taki við með öllu sem henni fylgir. Hvítu tjöldunum, brennunni á Fjósakletti, flugeldasýningunni, skemmtun á stóra sviðinu, böllum, brekkusöngnum, blysunum og öllum þeim hefðum sem gera hátíðina einstaka. 

En kannski er það þó samveran sem skiptir mestu. Þarna mætast kynslóðirnar, fjölskyldur og vinir koma saman og gamlar hefðir ganga áfram til þeirra yngri. 

Veðurspáin fyrir Þjóðhátíðarhelgina er mjög góð og ef hún gengur eftir má búast við miklum fjölda gesta til Eyja. Gott veður setur alltaf punktinn yfir i-ið á Þjóðhátíð og því er full ástæða til bjartsýni þegar stóra helgin nálgast. 

Á sunnudaginn var hins vegar enn vinnugallinn við völd. Hamrar, skrúfvélar og vinnufúsar hendur sáu um stemninguna í Dalnum. Á föstudaginn verður svo allt annar og hátíðlegri bragur á þegar Þjóðhátíð verður sett og gestir mæta í sínu fínasta pússi til að fagna upphafi stærstu helgar ársins í Eyjum. 

Nú eru aðeins síðustu handtökin eftir. Svo má Þjóðhátíð byrja fyrir mér. 

Magnús og Grímur með lærling með sér að setja upp Hofið.

Rúnar Þór í tjörninni.

Spjallið tekið 
Stundum þarf að taka gott spjall á milli verka, spá í hlutina og ekki síst hvernig veðrið verði á Þjóðhátíðinni í ár. 

Eyjólfur og co. 
Eyjólfur, Guðjón og Bassi létu sitt ekki eftir liggja. 

Göturnar taka á sig mynd 
Valgerður og Binni voru mætt með börnin í Skvísusundið. 

Stund milli stríða
Kiddi, Gunnar og Arnar tóku sér smá pásu milli stríða.

Bræðurnir prófa bekkinn 
Svanur og Guðjón Gunnsteinssynir nutu góða veðursins í Dalnum á sunnudaginn. 

Nýjustu fréttir

Allt að verða klárt fyrir Þjóðhátíð
Matarþjónusta eldri borgara færist í Vöruhúsið
Nýja vatnsleiðslan tilbúin til flutnings til Eyja
Súlurnar fara upp á morgun
Óska eftir að friðun Blátinds verði aflétt
Elís Þór leikur ekkert með ÍBV í vetur – Sleit krossband í leik með u-20 landsliðinu
Fjórði flokkur karla frá ÍBV tók þátt í Rey Cup
Miðasala á Þjóðhátíð fór á fullt skrið í gær
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.