Aflaheimildir til strandveiða auknar um 964 tonn
Strandveiðarnar standa nú sem hæst. Skjáskot/youtube.

Innviðaráðherra hefur á ný aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili með breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla. Með breytingunni er aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn, úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Með þessu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 15.664 tonnum árið 2026.

Þetta er í annað sinn í sumar sem innviðaráðherra tilkynnir um aukningu strandveiðiafla en í júní var aflamark þorsks hækkað um 2.700 tonn.

Aukningin á rætur að rekja til niðurstöðu skiptimarkaðar með aflaheimildir. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða eru 5,3% af leyfðum heildarafla í hverri tegund dregin frá og þeim aflaheimildum ráðstafað til tiltekinna úrræða, þar á meðal strandveiða, byggðakvóta, línuívilnunar o.fl. Tegundasamsetning þess afla sem dreginn er frá svarar ekki alltaf til þeirra tegunda sem úrræðin kalla á og er ráðherra því heimilt að skipta aflamagninu í aðrar tegundir á skiptimarkaði.

Niðurstaða skiptimarkaðarins skilaði meiri þorskaflaheimildum en gert var ráð fyrir í fyrri áætlun og nemur viðbótin tæpum 964 tonnum af óslægðum þorski.

Innviðaráðherra hefur ákveðið að ráðstafa þessari viðbót til strandveiða á yfirstandandi tímabili, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Nýjustu fréttir

Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Í höfn og á hafi – myndasyrpa
Málþing, súpa og spjall
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.