Makrílvertíðin er að hefjast og hjá Ísfélaginu leggja uppsjávarskipin Heimaey og Sigurður úr höfn í kvöld til veiða. Þótt makrílkvótinn sé ekki stór bíða umfangsmikil verkefni í haust með veiðum á norsk-íslenskri síld, íslenskri síld og vonandi loðnu. Hjá Vinnslustöðinni verður hins vegar ekki farið á makrílveiðar í ár vegna framkvæmda í uppsjávarvinnslunni, en þar er engu að síður annasamt haust fram undan, bæði á sjó og í landi.
Allt er að verða klárt fyrir makrílvertíðina hjá Ísfélaginu. Tvö skip félagsins, Heimaey og Sigurður, halda til veiða í kvöld og nemur makrílkvóti félagsins 5.400 tonnum.
„Kvótinn er lítill ef vel veiðist en mikill ef veiðar ganga illa. Annars er þetta gott verkefni fyrir tvö skip,“ segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins.
Eyþór segir að næg verkefni bíði skipanna þegar makrílveiðum lýkur. „Við erum með 17 þúsund tonna kvóta í norsk-íslensku síldinni og 10 þúsund tonn í þeirri íslensku, þannig að það verður líflegt hjá okkur í haust. Síðan bíðum við spenntir eftir niðurstöðum haustleiðangurs Hafrannsóknastofnunar. Standist væntingar um loðnustofninn gætu veiðar hafist í desember,“ segir hann.
Vinnslustöðin á 3.600 tonna makrílkvóta en ekkert skip félagsins fer á makrílveiðar í ár vegna framkvæmda í uppsjávarvinnslunni. „Framkvæmdirnar hafa dregist á langinn. Þess vegna leigðum við makrílkvótann frá okkur í ár og fengum þorskkvóta í staðinn. Það þýðir að unninn verður meiri þorskur hér í vinnslunni á næstu vertíð,“ segir Sindri Viðarsson, forstöðumaður uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar.
Þrátt fyrir það segir hann næg verkefni fram undan í uppsjávarveiðum. „Við eigum um 8.000 tonna kvóta í norsk-íslensku síldinni og stefnum á að hefja veiðar í september. Þá tekur íslenska síldin við en þar erum við með veiðiheimildir upp á 10 til 11 þúsund tonn.
Það lítur einnig vel út með loðnuna og reikna má með að endanlegur kvóti liggi fyrir að loknum haustleiðangri Hafrannsóknastofnunar. Það eru því næg verkefni fram undan hjá skipunum okkar, Gullbergi og Huginn,“ segir Sindri.
Enginn loðnukvóti hefur enn verið gefinn út fyrir komandi vertíð. Hafrannsóknastofnun hefur hins vegar lagt til upphafskvóta upp á 358 þúsund tonn, en endanleg ákvörðun um veiðar verður tekin að loknum haustmælingum á loðnustofninum.