Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, heimsótti á fimmtudaginn sl. lögreglustjórann á Vestfjörðum ásamt ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Á föstudag var ráðherra hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Þar með er lokið hringferð þar sem öll lögregluembætti á landinu voru sótt heim. Þetta segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Farið var í hringferðina til að kynna fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á lögreglunni. Ráðherra hyggst mæla fyrir frumvarpi um breytingarnar í haust og voru áformin lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda fyrr í sumar. Þau má lesa hér. Stærsta breytingin verður sú að lögregluembættum verður fækkað úr níu í fjögur til fimm. Þannig eiga að verða til stærri og öflugri embætti um land allt. Sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verður skoðuð sérstaklega.
Með hringferðinni gafst lögreglumönnum tækifæri til að ræða beint við ráðherra og koma sínum skoðunum eða áhyggjum á framfæri.
Mikil áhersla hefur verið lögð á náið samstarf og samtal við lögregluna í tengslum við breytingarnar. Sérstakur samráðshópur, skipaður starfsfólki ráðuneytisins, lögreglu og hagsmunasamtökum lögreglumanna, mun funda reglulega um nánari útfærslur á breytingunum.
Ráðherra hefur á fundum sínum með lögreglu verið afdráttarlaus um að skipulagsbreytingunum fylgi hvorki fækkun starfsfólks né lögreglustöðva. Markmiðið sé þvert á móti að efla lögregluna og gera henni betur kleift að takast á við breyttan veruleika.
„Ég er sannfærð um að breytingarnar eigi fyrst og fremst eftir að styrkja löggæsluna í landinu. Engu að síður var algjört lykilatriði að hitta lögreglumenn á öllu landinu og eiga við þá opið og hreinskiptið samtal. Á þessum fundum okkar hafa komið fram ólík sjónarmið sem ég er mjög þakklát fyrir og þau verða höfð til hliðsjónar þegar breytingarnar verða útfærðar nánar,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.