Miðasala hafin á Lundaballið
DSC_2448
Lundaballið er alltaf vinsælt. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Lundaball 2026 verður haldið í Höllinni laugardaginn 26. september. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að venju samkvæmt verði öllu tjaldað til þegar kemur að mat, skemmtun og óviðjafnanlegri stemningu.

Á matarborðinu verður meðal annars að finna nýjan og reyktan lunda, svartfugl og fjölbreytt úrval fisk- og kjötrétta. Að borðhaldi loknu sjá Jónsi í Svörtum fötum og Gosarnir um að halda uppi fjörinu á dansleik kvöldsins.

Miðaverð fyrir mat, skemmtun og dansleik er 14.900 krónur. Lundaballið er kjörið fyrir árshátíðir, vinahópa og saumaklúbba. Tekið er á móti hópapöntunum í netfanginu svennimagg@gmail.com.

Suðureyingar lofa frábæru Lundaballi og vonast til að sjá sem flesta í Höllinni 26. september.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.