Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Ný stjórn og starfsfólk SASS komu saman til vinnufundar á Sveitasetrinu Brú í Grímsnesi. Mynd/SASS.

Ný stjórn og starfsfólk Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) komu saman til vinnufundar á Sveitasetrinu Brú í Grímsnesi á dögunum. Þar var farið yfir helstu verkefni komandi starfsárs og áherslur samtakanna á nýju kjörtímabili.

Fram kemur á vef samtakana að fundurinn hafi markað formlegt upphaf samstarfs nýrrar stjórnar og starfsfólks SASS. Meðal þess sem rætt var um voru stefnumótun landshlutans, Sóknaráætlun Suðurlands, stofnun sunnlensks sveitarstjórnarskóla og undirbúningur ársþings samtakanna.

SASS er sameiginlegur vettvangur sveitarfélaganna 15 á Suðurlandi. Á fundinum var farið yfir hlutverk samtakanna og helstu samstarfsverkefni, þar á meðal Sorpstöð Suðurlands, Eignarhaldsfélag Suðurlands og starf ART-teymisins.

Sóknaráætlunin í forgrunni

Sóknaráætlun Suðurlands fyrir árin 2025 til 2029 var meðal helstu umræðuefna fundarins. Áætluninni er ætlað að stuðla að sjálfbærri þróun og uppbyggingu á Suðurlandi, efla samkeppnishæfni og bæta lífsgæði íbúa. Hún byggir á samráði við íbúa, atvinnulíf og kjörna fulltrúa og skiptist í fjórar meginstoðir: atvinnu og nýsköpun, samfélag, umhverfi og innviði.

Nýr sveitarstjórnarskóli

Á fundinum voru einnig kynnt drög að Sunnlenska sveitarstjórnarskólanum. Um er að ræða nýtt fræðslu- og kynningarátak fyrir nýkjörna sveitarstjórnarfulltrúa á Suðurlandi. Hluti verkefnisins felst í heimsóknum fulltrúa SASS til allra sveitarfélaga landshlutans.

Þá var hafinn undirbúningur að ársþingi SASS, sem fram fer dagana 29. og 30. október. Þar verður meðal annars fjallað um áhersluverkefni samtakanna og sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna á Suðurlandi.

Í fréttinni segir að vinnufundurinn hafi verið árangursríkur og mikill hugur sé í stjórn og starfsfólki að vinna að framgangi og hagsmunum landshlutans á nýju kjörtímabili. Nánar má lesa á vef SASS.

Nýjustu fréttir

Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Evrópuhreyfingin: 105.339 Íslendingar sögðu já
Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.