Lokatölur liggja nú fyrir úr fimm af sex kjördæmum landsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Aðeins er beðið eftir Suðvesturkjördæmi. Engar skýringar hafa fengist á þeirri löngu bið sem orðið hefur eftir lokatölum úr kjördæminu.
Já-hliðin fékk meirihluta í báðum Reykjavíkurkjördæmunum en nei-hliðin í Suðurkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi.
Lokatölur úr kjördæmunum fimm eru þessar:
Tæpast verður þó sagt að mikil spenna ríki um lokaniðurstöðuna. Afar miklar sviptingar þyrfti í þeim atkvæðum sem ótalin eru til þess að já-hliðin næði forystu.
Á landsvísu hafa nú 99.037 greitt atkvæði með nei, eða 52,5% gildra atkvæða, en 89.459 með já, eða 47,5%. Munurinn er því 9.578 atkvæði nei-hliðinni í vil. Auðir og ógildir seðlar eru 1.200, eða 0,6% allra greiddra atkvæða.
Fréttavefur RÚV greinir frá því að gera megi ráð fyrir að um 32.000 atkvæði eigi enn eftir að telja í Suðvesturkjördæmi. Miðað við það þyrfti já-hliðin að fá um 65% þeirra til þess að vinna upp muninn á landsvísu. Það myndi jafnframt þýða að já-hliðin fengi nærri 57% atkvæða í Suðvesturkjördæmi þegar öll atkvæði þar væru talin.
Miðað við stöðuna verður að telja afar ólíklegt að já-hliðin nái forystu.
Lokatölur úr Suðurkjördæmi í þjóðaratkvæðagreiðslunni eru þannig að alls sögðu 20.597 kjósendur nei, eða 60,5%, en 13.473 sögðu já, eða 39,5%. Munurinn var því 7.124 atkvæði, eða 21 prósentustig.
Í Vestmannaeyjum greiddu alls 2.640 atkvæði, eða 83,3% þeirra 3.169 sem voru á kjörskrá. Þar af kusu 1.743 á kjörstað í Barnaskólanum en 897 utankjörfundar. Skipting atkvæða í Vestmannaeyjum milli já og nei liggur ekki fyrir í þessum tölum.