Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Bara beðið eftir lokatölum úr Suðvesturkjördæmi
Á kjörfundi í Barnaskólanum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Lokatölur liggja nú fyrir úr fimm af sex kjördæmum landsins í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Aðeins er beðið eftir Suðvesturkjördæmi. Engar skýringar hafa fengist á þeirri löngu bið sem orðið hefur eftir lokatölum úr kjördæminu.

Já-hliðin fékk meirihluta í báðum Reykjavíkurkjördæmunum en nei-hliðin í Suðurkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi.

Lokatölur úr kjördæmunum fimm eru þessar:

  • Reykjavíkurkjördæmi norður: Já 57,5% – Nei 42,5%
  • Reykjavíkurkjördæmi suður: Já 54,5% – Nei 45,5%
  • Suðurkjördæmi: Já 39,5% – Nei 60,5%
  • Norðausturkjördæmi: Já 38,8% – Nei 61,2%
  • Norðvesturkjördæmi: Já 37,1% – Nei 62,9%

Tæpast verður þó sagt að mikil spenna ríki um lokaniðurstöðuna. Afar miklar sviptingar þyrfti í þeim atkvæðum sem ótalin eru til þess að já-hliðin næði forystu.

Á landsvísu hafa nú 99.037 greitt atkvæði með nei, eða 52,5% gildra atkvæða, en 89.459 með já, eða 47,5%. Munurinn er því 9.578 atkvæði nei-hliðinni í vil. Auðir og ógildir seðlar eru 1.200, eða 0,6% allra greiddra atkvæða.

Fréttavefur RÚV greinir frá því að gera megi ráð fyrir að um 32.000 atkvæði eigi enn eftir að telja í Suðvesturkjördæmi. Miðað við það þyrfti já-hliðin að fá um 65% þeirra til þess að vinna upp muninn á landsvísu. Það myndi jafnframt þýða að já-hliðin fengi nærri 57% atkvæða í Suðvesturkjördæmi þegar öll atkvæði þar væru talin.

Miðað við stöðuna verður að telja afar ólíklegt að já-hliðin nái forystu.

Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Nei 60,5% – Já 39,5%

Lokatölur úr Suðurkjördæmi í þjóðaratkvæðagreiðslunni eru þannig að alls sögðu 20.597 kjósendur nei, eða 60,5%, en 13.473 sögðu já, eða 39,5%. Munurinn var því 7.124 atkvæði, eða 21 prósentustig.

Í Vestmannaeyjum greiddu alls 2.640 atkvæði, eða 83,3% þeirra 3.169 sem voru á kjörskrá. Þar af kusu 1.743 á kjörstað í Barnaskólanum en 897 utankjörfundar. Skipting atkvæða í Vestmannaeyjum milli já og nei liggur ekki fyrir í þessum tölum.

Nýjustu fréttir

Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Fleiri utankjörfundaratkvæði en í vor
Kjördagur í Vestmannaeyjum – 241 höfðu kosið klukkan 11
Styrkleikarnir í Herjólfsdal í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.