Kjarnaborun í rannsóknarholu EG-02 á Landeyjasandi lauk á laugardag. Holan náði 291,5 metra dýpi og þar með er öllum vettvangsrannsóknum vegna fyrirhugaðs fýsileikamats á jarðgöngum milli lands og Eyja lokið.
Fram kemur á vef Eyjaganga að nú hafi verið aflað allra nauðsynlegra gagna til að ráðast í heildstætt fýsileika- og kostnaðarmat á verkefninu. Fyrr í sumar lauk hafbotns- og hljóðendurvarpsmælingum á sundinu milli lands og Vestmannaeyja, auk kjarnaborunar við Klifið í Vestmannaeyjum.
Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur hjá Völubergi, hefur haft umsjón með kjarnaborununum fyrir Eyjagöng. Hann segir borunina á Landeyjasandi hafa verið krefjandi, bæði vegna aðstæðna á yfirborði og í bergi.
„Holan hefur gefið okkur mjög nytsamlegar upplýsingar um þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina suðvestan við Kross,“ segir Benedikt.
Að hans sögn eru jarðfræðilegar aðstæður í Landeyjum ekki svo frábrugðnar þeim sem finna má í Eyjum. Nokkuð þykk móbergsmyndun, sem að mestu er uppbyggð úr sprungnu basalti, liggur þar ofan á mun þéttara setbergi.
Á næstu vikum verður unnin heildstæð jarðfræðiskýrsla. Þar verða niðurstöður úr báðum kjarnaholunum lagðar til grundvallar ásamt hljóðendurvarpsmælingum ÍSOR á sundinu milli lands og Eyja.
Á næstu mánuðum verður unnið úr gögnunum. Efla og Völuberg munu í sameiningu vinna fýsileika- og kostnaðarmat, en norska verkfræðistofan Norconsult mun samhliða vinna sjálfstætt mat á verkefninu.
Úttektirnar eiga að varpa ljósi á tæknilegar og fjárhagslegar forsendur jarðgangagerðar milli lands og Vestmannaeyja. Niðurstöðurnar eiga að liggja fyrir í lok árs.