Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Dagbjartur borstjóri Ræktunarsambands Flóa og Skeiða og Benedikt jarðfræðingur Völubergi. Ljósmynd: Eyjagöng.is

Kjarnaborun í rannsóknarholu EG-02 á Landeyjasandi lauk á laugardag. Holan náði 291,5 metra dýpi og þar með er öllum vettvangsrannsóknum vegna fyrirhugaðs fýsileikamats á jarðgöngum milli lands og Eyja lokið.

Fram kemur á vef Eyjaganga að nú hafi verið aflað allra nauðsynlegra gagna til að ráðast í heildstætt fýsileika- og kostnaðarmat á verkefninu. Fyrr í sumar lauk hafbotns- og hljóðendurvarpsmælingum á sundinu milli lands og Vestmannaeyja, auk kjarnaborunar við Klifið í Vestmannaeyjum.

Nytsamlegar upplýsingar um jarðlögin

Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur hjá Völubergi, hefur haft umsjón með kjarnaborununum fyrir Eyjagöng. Hann segir borunina á Landeyjasandi hafa verið krefjandi, bæði vegna aðstæðna á yfirborði og í bergi.

„Holan hefur gefið okkur mjög nytsamlegar upplýsingar um þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina suðvestan við Kross,“ segir Benedikt.

Að hans sögn eru jarðfræðilegar aðstæður í Landeyjum ekki svo frábrugðnar þeim sem finna má í Eyjum. Nokkuð þykk móbergsmyndun, sem að mestu er uppbyggð úr sprungnu basalti, liggur þar ofan á mun þéttara setbergi.

Á næstu vikum verður unnin heildstæð jarðfræðiskýrsla. Þar verða niðurstöður úr báðum kjarnaholunum lagðar til grundvallar ásamt hljóðendurvarpsmælingum ÍSOR á sundinu milli lands og Eyja.

Tvö sjálfstæð fýsileika- og kostnaðarmöt

Á næstu mánuðum verður unnið úr gögnunum. Efla og Völuberg munu í sameiningu vinna fýsileika- og kostnaðarmat, en norska verkfræðistofan Norconsult mun samhliða vinna sjálfstætt mat á verkefninu.

Úttektirnar eiga að varpa ljósi á tæknilegar og fjárhagslegar forsendur jarðgangagerðar milli lands og Vestmannaeyja. Niðurstöðurnar eiga að liggja fyrir í lok árs.

Play Video

Nýjustu fréttir

Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Evrópuhreyfingin: 105.339 Íslendingar sögðu já
Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.