Helgi Áss Grétarsson sigraði á afmælismóti Taflfélags Vestmannaeyja í atskák og Helgi Ólafsson bar sigur úr býtum í hraðskákinni. Mótin voru haldin í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.
Afmælismótið í atskák fór fram laugardaginn 29. ágúst. Keppendur voru 36, þar af þrír stórmeistarar. Tefldar voru átta umferðir og voru tímamörkin 15 mínútur á skák að viðbættum fimm sekúndum fyrir hvern leik. Skákstjóri var Ingvar Þór Jóhannesson.
Sigurvegari varð Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og nýkrýndur Íslandsmeistari í atskák, með sjö vinninga af átta mögulegum. Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari varð í öðru sæti með 6,5 vinninga.
Helgi Ólafsson stórmeistari og Þorsteinn Þorsteinsson, FIDE-meistari, urðu jafnir í þriðja til fjórða sæti með sex vinninga. Helgi var hærri á stigum og hafnaði því í þriðja sæti.
Í hléi á miðju móti var Helgi Ólafsson gerður að heiðursfélaga Taflfélags Vestmannaeyja. Heiðursnafnbótina hlaut hann fyrir ötult og fórnfúst starf, tryggð við uppeldisfélagið og glæsilegan árangur í rúmlega hálfa öld.
Afmælismót TV í hraðskák fór síðan fram sunnudaginn 30. ágúst. Þar voru keppendur 29, þar af þrír stórmeistarar. Tefldar voru ellefu umferðir með fimm mínútna umhugsunartíma og þremur viðbótarsekúndum fyrir hvern leik. Skákstjóri var Ingvar Jóhannesson, þrautreyndur skákstjóri sem á ættir að rekja til Kirkjubæjar í Vestmannaeyjum.
Helgi Ólafsson vann mótið með miklum yfirburðum og hlaut 10,5 vinninga af ellefu mögulegum. Er það einstakur árangur á jafn sterku móti.
Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari og Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari urðu jafnir í öðru til þriðja sæti með níu vinninga hvor. Björn var hærri á stigum og varð því í öðru sæti.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, var meðal keppenda og varð í sjötta til níunda sæti með 6,5 vinninga. Hún flutti Taflfélagi Vestmannaeyja kveðju frá Skáksambandinu og færði félaginu tíu nýjar skákklukkur að gjöf.
Árangur félaga í Taflfélagi Vestmannaeyja vakti athygli á báðum mótunum. Í atskákinni lentu Helgi Ólafsson og Þorsteinn Þorsteinsson í þriðja til fjórða sæti og félagar í TV höfnuðu í fyrsta, öðru og fimmta sæti í hraðskákinni.
Alls tóku 15 félagar í TV, búsettir ýmist í Eyjum eða uppi á landi, þátt í atskákmótinu og tíu í hraðskákmótinu.
Taflfélag Vestmannaeyja þakkar Vestmannaeyjabæ, fyrirtækjum og stofnunum innan bæjar og utan fyrir góðan stuðning á þessum merku tímamótum. Án stuðningsins hefði félaginu ekki verið unnt að vinna Úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga á afmælisárinu, gefa út 100 ára afmælisblað, standa fyrir tveimur fjölmennum skákmótum og færa skákheimili félagsins að Heiðarvegi 9 í sparifötin.
Frétt frá afmælisnefnd og stjórn Taflfélags Vestmannaeyja.