Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Helgi Áss Grétarsson og Helgi Ólafsson sigurvegar á afmælismótum TV um helgina
Helgi Áss (annar frá vinstri) sigurvegari á atskákmótinu,  Vignir Vatnar, Þorsteinn Þorsteinsson og Helgi Ólafsson ásamt  Hallgrími Steinssyni formanni TV (t.h.) og Arnari Sigurmundssyni formanni afmælisnefndar (t.v.). 

Helgi Áss Grétarsson sigraði á afmælismóti Taflfélags Vestmannaeyja í atskák og Helgi Ólafsson bar sigur úr býtum í hraðskákinni. Mótin voru haldin í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.

Afmælismótið í atskák fór fram laugardaginn 29. ágúst. Keppendur voru 36, þar af þrír stórmeistarar. Tefldar voru átta umferðir og voru tímamörkin 15 mínútur á skák að viðbættum fimm sekúndum fyrir hvern leik. Skákstjóri var Ingvar Þór Jóhannesson.

Sigurvegari varð Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og nýkrýndur Íslandsmeistari í atskák, með sjö vinninga af átta mögulegum. Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari varð í öðru sæti með 6,5 vinninga.

Helgi Ólafsson stórmeistari og Þorsteinn Þorsteinsson, FIDE-meistari, urðu jafnir í þriðja til fjórða sæti með sex vinninga. Helgi var hærri á stigum og hafnaði því í þriðja sæti.

Helgi Ólafsson gerður að heiðursfélaga

Í hléi á miðju móti var Helgi Ólafsson gerður að heiðursfélaga Taflfélags Vestmannaeyja. Heiðursnafnbótina hlaut hann fyrir ötult og fórnfúst starf, tryggð við uppeldisfélagið og glæsilegan árangur í rúmlega hálfa öld.

Afmælismót TV í hraðskák fór síðan fram sunnudaginn 30. ágúst. Þar voru keppendur 29, þar af þrír stórmeistarar. Tefldar voru ellefu umferðir með fimm mínútna umhugsunartíma og þremur viðbótar­sekúndum fyrir hvern leik. Skákstjóri var Ingvar Jóhannesson, þrautreyndur skákstjóri sem á ættir að rekja til Kirkjubæjar í Vestmannaeyjum.

Helgi Ólafsson vann mótið með miklum yfirburðum og hlaut 10,5 vinninga af ellefu mögulegum. Er það einstakur árangur á jafn sterku móti.

Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari og Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari urðu jafnir í öðru til þriðja sæti með níu vinninga hvor. Björn var hærri á stigum og varð því í öðru sæti.

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, var meðal keppenda og varð í sjötta til níunda sæti með 6,5 vinninga. Hún flutti Taflfélagi Vestmannaeyja kveðju frá Skáksambandinu og færði félaginu tíu nýjar skákklukkur að gjöf.

Góður árangur félaga í TV

Árangur félaga í Taflfélagi Vestmannaeyja vakti athygli á báðum mótunum. Í atskákinni lentu Helgi Ólafsson og Þorsteinn Þorsteinsson í þriðja til fjórða sæti og félagar í TV höfnuðu í fyrsta, öðru og fimmta sæti í hraðskákinni.

Alls tóku 15 félagar í TV, búsettir ýmist í Eyjum eða uppi á landi, þátt í atskákmótinu og tíu í hraðskákmótinu.

Taflfélag Vestmannaeyja þakkar Vestmannaeyjabæ, fyrirtækjum og stofnunum innan bæjar og utan fyrir góðan stuðning á þessum merku tímamótum. Án stuðningsins hefði félaginu ekki verið unnt að vinna Úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga á afmælisárinu, gefa út 100 ára afmælisblað, standa fyrir tveimur fjölmennum skákmótum og færa skákheimili félagsins að Heiðarvegi 9 í sparifötin.

Frétt frá afmælisnefnd og stjórn Taflfélags Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.