Eyjafréttir ræddu við nokkra nemendur í 1. bekk um fyrstu skóladagana, það sem þeim finnst skemmtilegast í skólanum, hvað þá langar að læra og framtíðardrauma þeirra.
Nafn: Antonio
Fjölskylda: Mamma mín heitir Alexandra og pabbi minn heitir Florin.
Hvað finnst þér skemmtilegast við að vera byrjaður í skólanum? Læra að lesa.
Hvernig var fyrsti skóladagurinn? Gaman.
Hvað langar þig að læra í skólanum? Lesa.
Hvað finnst þér best að hafa í nesti? Tortilla með gúrku, malakoff og smjöri.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór? Ég ætla að vinna á Vöruhúsinu.
Hver er besti vinur/vinkona? Binni er besti vinur minn.