
Vitað er um fimm börn sem fæddust í Betel við Faxastíg 6. Þar voru tveir samkomusalir og á efri hæð í vesturendanum var lítil íbúð. Á neðri hæðinni var snyrting, geymsla og aukaherbergi. Þarna bjuggu gjarnan forstöðumenn safnaðarins ásamt fjölskyldum sínum.

Fyrstur fæddist í Betel Daníel Jónasson (17. júní1938–16. júlí 2022), tónlistarkennari og sagnfræðingur. Foreldrar hans voru Guðbjörg Guðjónsdóttir frá Skaftafelli í Vestmannaeyjum og Jónas S. Jakobsson, myndhöggvari, listmálari, sálmaskáld og predíkari.
Næst fæddist þar Vilhjálmur Haraldsson húsgagasmiður þann 22. júlí 1939. Foreldrar hans voru Magny og Arnulf Harald Kyvik. Þau voru fædd og uppalin í Noregi en höfðu flutt til Bandaríkjanna. Þau komu til Vestmannaeyja 1939 til þess að taka þátt í starfi safnaðarins og dvöldu þar í eitt ár. Þau komu aftur til Eyja og voru þar 1946 til 1948.
Otto Sigmund Jacobsen (21. febrúar 1941–31. júlí 2017), kjötiðnaðarmaður og tryggingastarfsmaður, var þriðja barnið sem fæddist í Betel. Foreldrar hans voru norskir, Sigmund Wessel Jacobsen og Milda Spånberg Jacobsen. Þau veittu Betelsöfnuðinum forstöðu frá 1941 til stríðsloka 1945. Otto var þeirra fyrsta barn og vegna stríðsins fréttu ættingjar þeirra í Noregi ekkert af fæðingu hans fyrr en eftir stríð. Systir Ottos, Ester Karin, er eiginkona Varðar Leví Traustasonar frá Hjarðarholti í Vestmannaeyjum. Þau voru forstöðuhjón í Fíladelfíu á Akureyri og síðar í Fíladelfíu í Reykjavík.
Einar Jóhannes Gíslason frá Arnarhóli, Einar í Betel, tók við sem forstöðumaður í Betel 1948 og hann og Guðný Sigurmundsdóttir bjuggu þar til 1957. Í Betel fæddust þeim börnin Guðrún Margrét þann 16. desember 1949 og Guðni þann 23. febrúar 1953.