Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ríkisstjórnin eigi ekki langt eftir og að stutt geti verið í alþingiskosningar. Þetta kom fram á opnum fundi flokksins í Ásgarði í Vestmannaeyjum í gær.
Staða ríkisstjórnarinnar var meðal þess sem Guðrún ræddi og var hún gagnrýnin á störf hennar. Hún taldi ekki sjálfgefið að stjórnin sæti út kjörtímabilið og að því gæti verið styttra í kosningar en nú er gert ráð fyrir.
Með Guðrúnu á fundinum voru þrír þingmenn sem nýlega hafa tekið fast sæti á Alþingi, þau Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Árni Helgason og Sigurður Örn Hilmarsson. Þau kynntu sig, fóru yfir bakgrunn sinn og áherslur og svöruðu spurningum fundargesta.
Árni Helgason, þingmaður Suðvesturkjördæmis, tók sæti Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og á sterk tengsl við Vestmannaeyjar. Faðir hans er Helgi Bernódusson, Eyjamaður og fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis.
Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, tók við af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Ingveldur Anna Sigurðardóttir tók við af Vilhjálmi Árnasyni sem þingmaður Suðurkjördæmis. Hún er því einn fulltrúa Vestmannaeyinga á Alþingi.
Hagsmunamál Vestmannaeyja voru fyrirferðarmikil í umræðum. Skorað var á þingmennina að fylgja fast eftir samgöngumálum Eyjanna og þrýsta á um varanlegar lausnir. Vandamál í Landeyjahöfn og siglingar Herjólfs til Þorlákshafnar í byrjun árs undirstrikuðu enn á ný mikilvægi öruggra samgangna.
Ný almannavarnavatnsleiðsla milli lands og Eyja var einnig rædd. Lögð var áhersla á að ríkið standi undir kostnaði við framkvæmdina enda um mikilvægt almannavarna- og öryggismál að ræða. Vatnsleiðslan frá Landeyjasandi til Heimaeyjar er 12,7 kílómetra löng og kostnaður við framkvæmdina hleypur á milljörðum.
Skorað var á þingmennina að fylgja málinu eftir gagnvart stjórnvöldum og tryggja að kostnaður vegna vatnsleiðslunnar falli ekki á Vestmannaeyjabæ. Fundurinn var vel sóttur og líflegar umræður urðu um stöðu landsmálanna og helstu hagsmunamál Vestmannaeyja.