Sverrir Haraldsson, yfirmaður erlendrar starfsemi Vinnslustöðvarinnar, fer yfir umfang starfseminnar erlendis, framleiðsluna og verkefnin fram undan í myndbandsviðtali sem birt er á vef Vinnslustöðvarinnar.
Í viðtalinu ræðir Sverrir meðal annars þátttökuna í sjávarútvegssýningunni Conxemar í Vigo á Spáni. Þá segir hann frá framleiðslunni erlendis og því sem fram undan er, meðal annars sýningu í Kína.
Fróðlegt viðtal sem má sjá hér að neðan.