Skjöldur í þriðja sinn 
Skjöldur verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 17. október
Annika Staff
Annika
Vignisdóttir

Karlaráðstefnan Skjöldur verður haldin í þriðja sinn hér í Eyjum laugardaginn 17. október. Dagskráin hefst í Sagnheimum klukkan 14 þar sem Bergur Ebbi, Sveppi og Jónas Sigurðsson stíga á svið og munu þeir koma hver með sína áherslu og erindi.  

Bergur Ebbi mun fjalla um mennskuna á tímum gervigreindar og setja hana í samhengi við sögu samfélagsins. Sveppi verður með uppistand eins og honum einum er lagið og Jónas Sigurðsson veltir fyrir sér spurningunni: „Hvað merkir að vera karlmaður í dag?“ 

Að dagskránni í Sagnheimum lokinni klukkan 17:30 tekur við samvera og smakkupplifun á Brothers Brewery. Þátttakendur setjast síðan að kvöldverði á Einsa Kalda klukkan 19. 

Baldvin Freyr Ásmundsson er einn þeirra sem ætla að mæta í ár og verður þetta þriðja árið í röð sem hann tekur þátt. Hann segir viðburðinn bæði skemmtilega tilbreytingu og gott hópefli fyrir karlmenn á öllum aldri.  

Baldvin Freyr Ásmundsson.

Sameinar menn á öllum aldri 

„Við höfum alltaf farið saman karlarnir úr vinnunni og lítum á þetta sem hópefli. Við erum fámennur hópur sem vinnum í Íslandsbanka og það er gaman að gera sér dagamun og fara á eitthvað svona.“ 

Hann segir fyrstu ráðstefnuna hafa verið ákveðna tilraun sem hafi heppnast mjög vel. Árið eftir hafi viðburðurinn orðið enn stærri og segir hann skemmtilegra fyrirlestra hafa verið þessi tvö ár sem hann hafi mætt. Það sem standi upp úr sé helst uppistand Péturs Jóhanns ásamt fyrirlestrinum frá Mána á X-inu sem mætti árið 2024. 

Þó fyrirlestrarnir og skemmtunin séu stór hluti af upplifuninni segir Baldvin samveruna ekki síður skipta máli. 

„Maður kynnist mönnum sem maður hafði aldrei spjallað við. Þetta er góð leið fyrir karlmenn á öllum aldri til að hittast. Menn koma saman og gera sér dagamun.“ 

Baldvin hefur tekið eftir því að fleiri vinnustaðir nýti ráðstefnuna til hópeflis. Þar mæti líka vinahópar og menn sem séu kannski nýfluttir til Eyja og vilji kynnast fleirum. 

Dagskráin í ár leggst vel í Baldvin og segist hann sérstaklega spenntur að heyra fyrirlesturinn frá Bergi Ebba.  

„Hann er bara svo fyndinn og áhugaverður gaur og ég held að það verði gaman að hlusta á hann. Svo verður auðvitað gaman að hlusta á fíflaganginn í Sveppa.“ 

Baldvin segir ráðstefnuna hafa þróast með hverju árinu og líst vel á þær nýjungar sem bætast við dagskrána í ár, eins og samveruna á Brothers Brewery og kvöldverðinn á Einsa Kalda. 

„Þetta er skemmtilegt konsept sem er alltaf verið að þróa og gera betur. Ég mæli klárlega með þessu fyrir karlmenn á öllum aldri,“ segir hann að lokum. 

 

 

Nýjustu fréttir

Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.