Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Óskar Jósúason

Aðsend grein

Óskar Jósúason

Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri stefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027.

Samkvæmt samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga er gert ráð fyrir að skattabreytingar auki skattheimtu á fólk og fyrirtæki um rúma 34 milljarða króna. Á sama tíma er dregið úr framlögum til samgöngumála, byggðamála og nýsköpunar.

Það vekur sérstaka athygli að sveitarfélög og byggðamál eru meðal þeirra málaflokka sem sæta mestum samdrætti að raunvirði.

Öflugt atvinnulíf þarf öfluga innviði

Þetta skiptir okkur máli. Öflugt atvinnulíf og fjölbreytt störf eru undirstaða framfara í hverju sveitarfélagi. En til þess að atvinnulífið geti vaxið og dafnað þurfa grunninnviðir að vera til staðar.

Við í Vestmannaeyjum þekkjum það vel. Góðar samgöngur og öflugir innviðir eru ekki munaðarvörur heldur forsenda búsetu, atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar.

Hér í Eyjum fer fram mikil verðmætasköpun sem skilar þjóðarbúinu umtalsverðum tekjum. Við erum ekki að kalla eftir sérmeðferð, heldur sanngjarnri hlutdeild í opinberum fjárfestingum í samræmi við þau verðmæti sem hér verða til. Við höfum svo sannarlega unnið fyrir því.

Meiri skattheimta, minni uppbygging?

Auðvitað þarf að sýna ábyrgð í ríkisfjármálum. En sú ábyrgð má ekki felast í því að draga úr möguleikum þeirra samfélaga sem skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið.

Þess vegna velti ég því fyrir mér hvort við séum í raun að sjá ákveðinn landsbyggðarskatt birtast í fjárlagafrumvarpinu. Ríkið innheimtir meira og meira en dregur um leið úr framlögum til þeirra málaflokka sem skipta framtíð landsbyggðarinnar hvað mestu máli.

Við í Vestmannaeyjum erum vön því að þurfa að borga fyrir að komast til og frá Eyjum. En það væri nú fullmikið ef við þurfum líka að borga sérstaklega fyrir að fá hluta af okkar eigin verðmætasköpun til baka.

 

Óskar Jósúason
Bæjarfulltrúi

Nýjustu fréttir

Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.