Eyjafréttir sýna beint frá fundinum Mótvindi á Hótel Selfossi í dag, fimmtudaginn 15. október. Fundurinn hefst kl. 17 og stendur til kl. 19. Staða og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi verður í brennidepli.
Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness standa að fundinum. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni hér í fréttinni.
Á fundinum mun Deloitte kynna niðurstöður greiningar sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Samkvæmt upplýsingum fundarboðenda verður meðal annars rætt um skattahækkanir á baðlón, hækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi og frumvarp um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.
Erindi flytja Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte, Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi Konvin Hotel, og Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Í seinni hluta fundarins verða pallborðsumræður með þingmönnum Suðurkjördæmis. Þátt taka Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Halla Hrund Logadóttir, Karl Gauti Hjaltason, Sandra Sigurðardóttir og Sigurður Helgi Pálmason. Jóhannes Þór Skúlason stýrir umræðunum.
Fundarstjórar eru Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness, og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands.