Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Bleiki liturinn var áberandi í Íþróttamiðstöðinni í dag þar sem Krabbavörn í Vestmannaeyjum bauð varning til sölu í tengslum við leik ÍBV og Fram. Allur aðgangseyrir af leiknum rennur til félagsins. Ljósmynd: Óskar Pétur Friðriksson.

Kvennalið ÍBV í handknattleik tekur á móti Fram í Olísdeildinni í dag klukkan 14:00. Leikurinn verður svokallaður bleikur leikur í tilefni bleiks október og rennur allur aðgangseyrir til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum.

Eyjakonur munu leika í glænýjum bleikum treyjum frá Macron í tilefni dagsins. Með framtakinu vill ÍBV vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini og um leið styðja við mikilvægt starf Krabbavarnar í Vestmannaeyjum.

Aðgangseyrir á leikinn er 2.500 krónur og er miðasala hafin í Stubb-appinu. Athygli er vakin á því að Krókódílakortin gilda ekki á þennan leik.

Fulltrúar Krabbavarnar í Vestmannaeyjum verða jafnframt með varning til sölu í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar og eru gestir hvattir til að styðja við starf félagsins með kaupum á varningnum.

Toppbarátta í Olísdeildinni

Það er ekki aðeins gott málefni sem er í húfi því ÍBV og Fram eru jöfn með átta stig í öðru og þriðja sæti Olísdeildar kvenna eftir fimm umferðir.

Eyjakonur koma til leiks eftir góðan 30–26 útisigur á ÍR í síðustu umferð og freista þess nú að fylgja þeim árangri eftir á heimavelli.

ÍBV – Fram hefst klukkan 14:00 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.

Fulltrúar Krabbavarnar í Vestmannaeyjum við söluborð félagsins í Íþróttamiðstöðinni. Allur aðgangseyrir af leik ÍBV og Fram í dag rennur til félagsins. Ljósmynd: Óskar Pétur Friðriksson.

Nýjustu fréttir

Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Erlingur hefur snúið gengi Minden við – þrír sigrar í röð
Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
ÍBV og Fram mætast í toppslag í Eyjum
Bikarævintýri ÍBV 2 heldur áfram gegn Þór í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.