Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 13. október að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri líkamsræktaraðstöðu, niðurrifi eldri búningsklefa og nýjum inngangi íþróttamiðstöðvarinnar. Sjö fulltrúar D- og E-lista samþykktu tillöguna en tveir fulltrúar Miðflokksins sátu hjá.
Fulltrúar Miðflokksins, Jón Þór Guðjónsson og Jóhann Ingi Óskarsson, ítrekuðu við afgreiðsluna fyrri bókun flokksins í umhverfis- og skipulagsráði. Þar hafði verið kallað eftir frekara samráði og heildstæðri framtíðarsýn fyrir íþróttasvæðið.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu hins vegar áherslu á að breytingarnar væru mikilvægt framfaraskref sem myndi bæta aðstöðuna og auka aðdráttarafl íþróttamiðstöðvarinnar fyrir fólk á öllum aldri.
Samkvæmt auglýstri tillögu er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir allt að 950 fermetra líkamsræktaraðstöðu á tveimur hæðum við norðvesturhluta íþróttamiðstöðvarinnar.
Einnig er gert ráð fyrir niðurrifi eldri klefa, alls 663 fermetra. Við það skapast rými fyrir dvalarsvæði framan við innganginn og nýjan byggingarreit fyrir inngang íþróttahússins, að hámarki 680 fermetra á tveimur hæðum.
Framkvæmdirnar munu raska hrauni og núverandi dvalarsvæði við innganginn. Samkvæmt kynningu bæjarins er gert ráð fyrir nýjum dvalarsvæðum og áherslu á góðan umhverfisfrágang að framkvæmdum loknum.
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 21. september lagði fulltrúi Miðflokksins til að málinu yrði frestað og fundað með hagsmunaaðilum. Sú tillaga var felld með fjórum atkvæðum gegn einu.
Miðflokkurinn sagðist styðja metnaðarfulla uppbyggingu íþróttamannvirkja en vildi að horft yrði á svæðið í heild, meðal annars framtíðaraðstöðu fyrir fimleika. Auglýsing skipulagstillögu gæti ekki komið í stað samráðs áður en meginlínur uppbyggingar væru ákveðnar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu töldu frestun hins vegar tefja uppbygginguna. Þeir bentu á fyrirliggjandi samning við rekstraraðila og að auglýsing tillögunnar gæfi hagsmunaaðilum færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Tillagan er nú í auglýsingu. Skipulagsgögn eru aðgengileg í Ráðhúsinu, á vef bæjarins og í Skipulagsgátt HMS undir máli númer 1190/2026.
Skriflegum ábendingum og athugasemdum þarf að skila í gegnum Skipulagsgátt eigi síðar en 25. nóvember 2026, samkvæmt auglýsingu bæjarins.
Þessu tengt:
Tímaáætlun vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar World Class við Íþróttamiðstöðina hefur riðlast. Samkvæmt tímaáætlun sem fylgdi samningsskilmálum átti Vestmannaeyjabær að leggja fram breytingu á deiliskipulagi innan 60 almanaksdaga frá samþykki tilboðsins. Fullnaðarhönnun viðbyggingarinnar átti að vera lokið innan 180 daga. Tilboð World Class var samþykkt 25. mars. Skipulagsbreytingin átti því að liggja fyrir eigi síðar en 24. […]