Grettir Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja. Hann tekur við af Herði Baldvinssyni, sem lætur af störfum að eigin ósk í árslok 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þekkingarsetrinu.
Grettir hefur undanfarið starfað sem nýsköpunarstjóri uppsjávariðnaðarins og unnið að því að koma frumkvöðlafyrirtækinu Saltey á legg ásamt fjölskyldu sinni.
„Við duttum í lukkupottinn að fá Gretti um borð enda hefur hann djúpa reynslu og er gæddur mörgum einstökum kostum sem munu reynast vel í þessu fjölbreytta starfi,“ segir Tryggvi Hjaltason, stjórnarformaður Þekkingarseturs Vestmannaeyja, í tilkynningunni.
Þar kemur fram að starf Grettis sem nýsköpunarstjóra uppsjávariðnaðarins hafi meðal annars verið samstarfsverkefni með Þekkingarsetrinu. Starfsfólk setursins hafi því fengið að kynnast honum undanfarin tvö ár.
Tryggvi lýsir Gretti sem frumkvöðli, færum fjármálastjórnanda og greinanda og gervigreindarforritara. Þá sé hann mannblendinn og hugmyndaríkur.
Í tilkynningunni er jafnframt fjallað um framlag Harðar Baldvinssonar, sem hefur gegnt starfinu undanfarin sex ár. Tryggvi segir Hörð hafa eflt nýsköpunar- og rannsóknarumhverfið í Vestmannaeyjum með margvíslegum hætti og að Grettir þurfi að feta í stór fótspor hans.
„Við hlökkum til að fara að vinna með Gretti að því að stuðla að nýsköpunardrifinni framtíð Vestmannaeyja,“ segir Tryggvi í tilkynningunni.